Monday, December 22, 2014

Rándýr

Þegar dagsljós er ekki að sjá
og komin er nótt fer ég á stjá.

Fáir vita hver ég er 
en margar sögur ég sem og bendi á það sem ekki vel fer.

Það sem ég vil að þú vitir nú
varðar skugga með dökka trú.
Þeir að veikum blett leita, að þér stendur hættan sú.

Hvað þeim gengur til er erfitt að lýsa
því það er ekkert sem góðir menn fýsa.

Sinn náunga sjá sem bráð 
til þess að niður rífa og skilja eftir sár.

Hungur eftir tárum hafa
og drekka blóð sem safa.
Ég veit þetta er ljót saga.

Það sem þú sjá þarft
er að þú hættu heim bíður
ef sýnir þú mýkt, það get ég þér sagt.

Skuggarnir að þér læðast,
slefandi eftir að kætast og vilja veiða það sem þykir sætast.

Saklausir ekki vita,
sig sjálfa oftast kenna og sárir eftir sitja.

Ekki óttast því með ljósi í hendi þér
getur lýst upp myrkrið svo engan felustað það finnur sér.

Mundu að þú yfirburði berð, ert ofar öllum kvikum
með því vopni sem í huga berð; gegn vörgum og svikum.

Vit er betra en fé.
Þú veist ekki hvað félagann þyrstir
og hvort hjarta sitt frystir.

Að hafa sig hægt best er, treystu mér; 
við grimmust allra dýra en okkar á milli eru rándýr meðal rándýra.

Tuesday, November 25, 2014

Noodle Station

Þú þarft:

700 - 1000 ml vatn í miðlungspotti
4 geira af hvítlauk
2 kjúklingaleggi
Baunaspírur
Púrrulauk (val)
Steiktan hvítlauk (fæst í Mai Thai)
Hrísgrjónanúðlur
Sojasósu (góð sletta eða tvær)
Fiskisósu (um helmingi minna en af sojasósunni)
Kjúklingakraft (1/2 teningur)
Rauðvínsedik (lítil skvetta)

Kryddin: (setjið sirka 1/4 af teskeið af hvoru nema meira af kanilnum, gott er að setja hann seinast og smakka til.)
Kardímonnur
Múskat
Negull (malaður)

Kanill
Engifer
Allrahanda
Cyannepipar
Cumin

Setjið kjúklingaleggina í pottinn og látið suðu koma upp. Rífið þá hvítlauksgeirana og setjið út í og látið sjóða með þangað til kjötið byrjar að losna aðeins frá beinunum. Losið síðan kjötið af og takið beinin uppúr.
Bætið síðan öllu við og stráið steikta hvítlauknum, púrrunni og baunaspírunum yfir, þegar súpan er komin í skálina, eftir smekk. 

Vatnið sýður vel niður svo þetta passar í einn stóran skammt. Munið að hrísgrjónanúðlur þurfa lengri suðu en venjulegar núðlur.
Þið getið leikið ykkur með hlutfall kryddana eins og ykkur finnst passa.

Thursday, November 20, 2014

Gæðingur

Taktfastur hrynjandi,
samfeldur í áleitnum straum
og blæs svalandi andvari.
Sörli er léttur í taum.

Samhljómur iðandi,
takturinn er flæðandi afl
sem er seiðandi lifandi
í fjórtaktandi fall

Djúpur hófadynur,
áframlíðandi er sláttur.
Í jörðinni magnast glymur
og drösullinn er sáttur.
gigga

Wednesday, November 12, 2014

Ríma

Ég hef ekkert að yrkja,
kvöldin eru löng.
Þótt reyni hana að styrkja
er sálin enn svöng.
Þyngsli á mér lyggja
og veröldin ströng,
ég vil það syrgja
að hugsun mín er röng.
Vill inni byrgja
og horfa í gegnum göng,
gleðina myrja;
neita að syngja söng.
Bara til nátta kyrja:
lífsins leið er þröng.
gigga

Wednesday, November 5, 2014

Músaskelfir

Með þér er léttir,
í hlýju að lúra.
Það er gott að kúra
eins og tveir kettir.

Í friði í ró,
það alger sæla
og hin mesta fró
ekkert að pæla.

Núna syrja mig:
Hver gefur frið,
er maður þér við hlið?
Nei frá þeim hef grið.

Feldur mig hylur,
felur og hlífir.
hér er enginn bylur,
kisu með hvíli.
gigga

Saturday, November 1, 2014

Annað bréf til Láru

Helduru að ég sætti mig við að þú viljir ekki hafa til mín skyldur, hugnast ekki að hafa mig systur?

Þú ert hættur að sjá mig, heldur að ég geti tekið allt. Þú hefur ekki hugmynd um hvað ég vinn hart.
Hef mikið fyrir því að halda í minn kraft.

Gengur út frá því að minn kærleikur sé í botnlausum bikar, að ég geti tekið margar svikar.

Hver helduru að þú sért og hvaða rétt hefuru, hvað hefuru til þess gert.
Ótal sinnum hef ég séð þína köldu hlið og nú færðu að sjá mína hina, vörnina mína.

Sigrún er ekki hér, í nótt býr annað nafn í mér.

Hefuru elskað svo heitt að þú myndir fyrir gefa hendi? Ekki orðatiltækið, nei, bókstaflega alveg sama hvað þig fyrir henti?

Að vita að þau eru þitt hjarta, þú þeirra brynja og vega alla sem ekki vilja þeim það bjarta?

Hvað gerist þegar þú verður uppspretta sársaukans til náungans?
Karma snýr sér við og þig bítur og allt sem þú fyrir stendur þig fyrirlítur?

Hvað ætlaru að gera þegar þú ert fíblið? Mæta þér sjálfum eða blindast og gera lítið?
Hvað geruru þegar aðrir líta frá þér í hina áttina og leita ekki í sáttina?

Munt þú líta í þitt auga eða á aðra benda og saurga?
Ertu djarfur eða heigull og skarfur?
gigga

Friday, October 31, 2014

Andgift

Þær sem ekki ýta sjálfri sér til þolmarka sinna
afreka ekki mikla hluti.
gigga

Tuesday, October 28, 2014

Sigga Sól

Nú fer að koma að leiðarlokum,
ég hef eina skvísu að kveðja.
Hún hefur alltaf gengið í rauðum sokkum
og haft hungur að seðja.

Stundum þegar ég var að kafna,
hægum dauða að deyja;
hafði hún verið kröftum að safna
og geymt allt sem þurfti að segja.

Alveg rosalega sæt,
þurfti bara elxír
og við urðum eins og Dr. Jekyll og Hr. Hyde.

Þar sem ég lá of hvít á geði
hún litaði mig svartri gleði
og dróg mig úr felum,
það var það sem hún gerði.

Með henni fór hlægjandi inn í nóttina
með loga í augunum.
Þá var eins gott að þú tókst til fótana
því þarna gat ég sleppt draugunum.
Fyndið að þú kallir hana Siggu Sól,
eða kannski ekki því hún leysti mig úr fjötrunum
og nafnið rímar við ól.

Haha ég man trylltan hlátur
umvafinn nornasveim.
Á tungunni var eitthvað beitt
og sárin eftir mig náðu inn á bein.
Hún kom mér til stjarnana,
lét mig dansa þar til ég varð sveitt.
Hún heimsækjir okkur margar 
og það mun enginn ná að stjaksetj´ana.

Þegar hún fór
skildi eftir sig tóm.
Blóðbragð í munni
og sáran góm.

Allt er gott sem hún vill,
bara ræður ekki við þetta
hún er ill.

Nú þarf ég að segja bless
því á endanum hefði hún tekið minn sess.

Vill líka vera vina þín,
ekki vera hrædd,
hún er rosalega sæt.
Drekktu bara elxír
og þið verðið eins og Dr. Jekyll og Hr. Hyde.
gigga


Saturday, October 25, 2014

Bad ass

Framundan berar klappir,
þekja hæðóttan völlinn.
Þær magna vindaköllin,
við þá sýn þreytast lappir.

Upp bakið læðist ótti.
Landið dökkt í húminu,
það er kalt í hríminu
og ekki í boði flótti.

Fokkit, ég kveiki mér í sígó og legg af stað.
gigga

Að sakna elskhuga

Minningu þinni reyni að bægja frá
en samt bara smá,
því það er ljúft að hafa þig hjá.
Ekkert í faðminum,
þig er hvergi að sjá.

Þegar hugurinn dregur þig upp
og þinn ákafa inn,
fyllist hjartað, blíð sæla fyllir mig upp.
Fellur svo niður og fjarar út.

Felli engin tár því ég veit að þú ert
bara handtaki mér frá.

Glaðvært hjal heyrist vart.
Nú er þagnað,
ekkert meira til sagna.
gigga

Monday, October 20, 2014

Baktalarar

Einn, tveir, þrír ég í burtu sný,
fjórir, fimm, sex því ég vil ekkert stress.
Sjö, átta, níu þú minnir á kríu,
tíu, ellefu, tólf þú ert fyrir svo ég kasta þér í gólf.
Þrett- fjór- fimmtán þínar tennur eru með skán,
sex- sjau- átján rotnar, líka á tunguinni skán,
tuttugu, einn, tveir, þrír og lyktar eins og kýr.

gigga

Sunday, October 19, 2014

Skömm

Um stóra glæpi stúlkna
er þetta stolin vísa.
Steinþegja þeim sagt best er.
Mega fá að vera skvísa
svo þær dópa sig í hel.
Mega ekki ást gefa,
ljótt er til elsku semja.
Fljóð ættu helst ey sefa,
losta og ekkert vefja.
Er það glæpur að elska.
Er það glæpur að þrá.
Er það glæpur að hafa hjörtu sem hrifnæm slá.

Um stóra glæpi pilta
er þetta stolin vísa.
Steinþegja þeim best sagt er.
Mega frá sér ást fýsa,
svo þeir dópa sig í hel.
Allt er betra en sakna,
og blóðug hjörtu bera.
Dökka og dimma þanka
þykja í mannstolt skera.
Er það glæpur að elska.
Er það glæpur að þrá.
Er það glæpur að hafa hjörtu sem hrifnæm slá.


gigga

Hluti af textanum er stolinn frá Bubba Mortens

Monday, October 13, 2014

Úr álfhólum

Fyrsta koma var stórt skref,
sala í hjartað sker.
Ótti við nýjan veg,
óvíst fet fórst um óraveg.

Harður áfram á stökki fórst,
stórhuga hratt og illur í mót.
Í heima haga vildir skjótt
þú brokkgengi hraðskreiði jór.

Ólgandi Kvika
úr álfhólum ól,
son sem dreka;
skær sem rauð sól.

Roði með stjörnu á enni.
Styrkur sem sterkur jörð óð,
blæs sinn síðasta eld að senni
svo með sorg ég sendi þér ljóð.

Saman náðum á þriðja vetri,
með snoppu næmri kystir.
Hjarta mitt leystir úr sínu setri,
kastaðir toppi og gerðir að systir.

Til manna

Í draumum þú flýgur á brott
og vilt mig ekki með.
En í vöku situr og bíður eftir mér,
vonar að ég skrifi og lagi þitt hjartabrot.

ÞÚ! syrgir það sem ég gaf þér.
Aldrei aftur komdu nálægt mér.
Þín heimska kom þér á kné,
dauður máttu heita og aldrei sjást hér.

Í helju skaltu brenna
það er djöfull í þér.
Þetta var allt þér að kenna
en skömmin býr í mér.

En þú elsku ástvinur ert hluti af mér,
það sem við áttum mun ávalt ljóma.
Ást þín var yndisleg og báðum til sóma.
Ávalt áttu skuld sem borga þarf þér.

Og þú, fallega sál
ég vona að Guð lækni þín sár.
Hugur minn feldi tár 
er þinn í burtu flaug frá.

Sunday, October 12, 2014

Óður til mín

Einn tveir þrír, þú kemur ekki í sýn,
veist hvar ég er en hefur ekki efni á mér ég er of dýr.
Þú sérð illa og hefur ekki góða sýn,
getur ekki borgað og hugsar eins og dýr.

Frekar er ég ein en með manni sem flýr.
Í mér er dýpt en með nísku frá snýr,
gerir það viljandi, hugsandi skýr
því ég vil ekki teljast með skríl.

Rekkja mín er hlý
og fær ekki að teljast þín.

Thursday, August 14, 2014

Bréf til Láru

kafli 1.



Ég var bara 6 ára þegar ég var spurð fyrst hvort það mætti afmeyja mig,
13 ára þegar einhver spurði hvort ég vildi totta sig.
Hann síðan lamdi mig, í tvo tíma.

Sá fyrsti sem kyssti mig byrjaði síðan að vinna í grunnskólanum mínum.
Hann horfði aldrei á mig með augunum sínum.

Eitt og tvo komust ekki inn,
tíminn var ekki minn.
Þrjú afneitaði mér og fjögur hélt framhjá mér.
Restina ekki man ég.
Heima var ég áfram barin,
það fylgir elsku að vera lamin.

Fann eitt sinn öruggt skjól en þegar einhver næstum dó,
sagði hann mér að trufla sig ekki hann vildi ró.
Í 7 ár ég talaði við vegg, síðan tók ég minn segg.
Númer átta vil ég ekki segja frá.

Það breynglaða er að ég held að skömmin sé mín,
ég vissi ekki betur, var bara seventeen.

Ég hef frá svo miklu að segja.
Það gerðist svo miklu fleirra.

Þó öskufall kemur svift,
skín í gegnum myrkrið sem lyggur á mér eins og sót,
helduru að það sé tilviljun að ég sé kölluð Sigga Sól?
Svo ef þú ætlar að dæma mig haltu kjafti,
ég keppi í þungavigt og er ekki hætta við falli.

Helvítis bjartsýni alltaf hreint...

Orð mín fjúka á þig eins og vindur,
sorry en þú átt ekki séns í mig vinur
og ert varla syndur.


Kafli 2.


14 heimili á 18 árum, 5 skólar á 10 árum. 
Finnst þér skrítið að ég missti vitið þakin sárum.

Fæ að vera með en ekki tilheyra
og fólk gapir þegar ég fæ minn veruleika að segja.

Klukkan 10 um kvöld árið 2010 heyrðist brothljóðið og ég brast,
shit þá varð mikið brask.
Og ég drakk.

Nú kemur önnur saga. 
Sjáðu sko, þeir sem feta grýtta leið malla ekki bragðgoðan seið
og aðrir frá sér þeim baða.
Þannig er sú saga, svoldið illagerð skrítla,
verðum svoldið erfið og fólk yfir okkur haus sinn hrista.
Segir okkur ekki á Guð treysta.

Hann getur fokkað sér því við eftiköstin leikum,
þannig er það í öllum veruleikum.
Kostnaður sem greiðist ekki léttum leikum.

Þú segir mér að honum þurfi ég að þjóna,
fyrir honum þurfi enn og aftur á hnjánum skríða
og biðja mér vægðar fyrir sárum sem svíða.
Ævin má ekki vera innan minna sjóna.

Að ég sé vandamálið, að við mig sé að sakast.
Enn og aftur sagt að sjálf mitt sé ekki rétt bakað.
Hættu nú því þetta á ekki við
hvað sum okkar varðar.

Kafli 3.


Það var ekki hann sem tókst að byrja að ná mér tilbaka,
flétta ofan af stelpunni sem lyggur í hnipri, heldur um höfuð sitt öskrandi.
Ærð, sturluð, farin á mis og næstum dáin.
Það var læknir sem snerti mig og með mjúkum höndum og umlék mig
og sagði mér að hugsa á allt annan hátt.
Í fyrsta skipti var mér sagt að vinna ekki harðar
heldur að slappa af og láta mig mildi varða.

Ég reyndi Guðinn þinn, vann dag og nótt.
Honum gaf lífið og eins og sauður skreið á hnjánum.
Hirðinn elti og veistu hvar það endaði?
Í faðminum á númer átta.
Ég get ekki annað en hlegið.

Ég fann það sem þú sagðir mér að finna.
handleiðsluna sem ég mátti ekki hunsa því annars myndi ég deyja.
Vildi ekki taka stjórnina af ótta við að fá ekki það sem ég þurfti.
Það sem ég grátbað um.

Ég komst af því að það eru bara tilviljanir, engin Guðleg handleiðsla,bara óskhyggja og val.
Finnum það sem við leitum af ef við leitum nógu lengi.
Það bara gerist, hefur ekkert með meintan algóðan Guð að gera.
Ekki segja mér að þetta hafi ekkert með mig að gera,
ég vann hart að þessu.

En ég skal vera sanngjörn og segja þér að þetta hefur líka við þig að gera.
Þú tókst við símtölum mínum og studdir á milli viðtalstíma.
Ég mun líka alltaf styðja þig því við leitum að því sama.
Þó þú skiljir ekki það sem ég skil.

Ég held stundum að ég sé að gefast upp.

Ég fer samt stundum á hnéin
í vonum að hann sé þarna.
Sögurnar um hann eru góðar vögguvisur.

Get unnið og elskað úr mér hjartað og samt verið slegin. 
Það skiptir litlu.
Það er betra að geta leitað tl þín í skamma stund stundum.

Friday, July 25, 2014

Sigrún

Sigrún

Þegar hún kom að vatninu var hún búin að finna fyrir hjartslátti sínum í svolítinn tíma. Tauga- og vöðvaspenna höfðu fengið hana til þess að afþakka boð um far niður eftir, vildi ganga. Dagurinn hafði verið góður en fylgt höfðu sterkar tilfiningar. Hún tilheyrði ákveðinni gerð af mannverum. Þeirri sem finna of mikið. Þetta gerði þær oft örþreyttar. 

Lífsförin var ganga yfir þunna ísbreiðu. Brak og sprunguhljóð gáfu stöðuga áminningu um að á hverri stundu myndi undirstaðan gefa undan, þetta var ekki spurning um hvort heldur hvernær. Hvert skref var áhætta og fyrir neðan beið ólgandi vatn sem var svo kalt að það stakk. Þá tók ekkert við nema baráttan í gegnum sársaukann af þúsund stungum og andköfum, að komast aftur uppá breiðuna og síðan halda göngunni áfram, með sinni sögu. Styrjöld um lífið.Margir af þessari tegund örmögnuðust, gáfu eftir fyrir djúpinu fyrir neðan. Hún velti því stundum fyrir sér hvort styrkur hennar myndi einn daginn fjara út. 

Eitt sinn hafði hún dottið í sjóinn, þá hafði sjokkið kveikt upp gífurlega gífulegri orku og lífsþrá. Léttirinn við að ná að klifra aftur upp á hafnarbakkan og þakklætið sem kom yfir fyrir að hafa kynnst þessari reynslu sat í minni. Þetta var ekki ósvipað.

Í kringum vatnið voru fallegar hvannir á milli maríustakka. Lyktin var góð og ásjónan falleg. Við bakkan stóð anda, reist með gogginn upp í loft, og litaðist um. Hún var að standa vörð á meðan ungarnir hennar busluðu og vöppuðu um. Sigrún kraup niður og fylgdist með móðurinni. Horfði á hvernig hún geislaði af sjálfstrausti, hvernig hún hafði stjórn á aðstæðum sínum. Treysti á ekkert nema eigin færni, einginn sá um fyrir henni og hennar. Þessi stund friðaði Sigrúnu, hringiðjan innra með henni tók að hægja á sér og taka á sig mynd. Tilfiningin breiddist út um líkamann og dreifði fiðrildum út um líkamann undir húðinni. Og þrátt fyrir að hún sveið, fylgdi henni ró og vellíðan.

Framkvæmdir dagsins höfðu kallað á herðingu hugans og hugrekki til þess að taka nokkur spor áfram, að vera eins og andan. Andlitið byrjaði að mynda vís af grettu og varirnar, sem báru dökkbleikan lit, tóku að titra og tilfiningin heltók hana svo ekkert annað rúmaðist fyrir innan og hún skynjaði ekkert annað en fegurð orkunar.

Það er til saga af blómálfi, með vængi, sem var svo lítil að hún gat bara rúmað eina tilfiningu í einu. 

Þetta var svolítið þannig og var ljúfur léttir undan hinni vanalegu ólgu af þúsund tilfiningum sem blikknuðu ótal sinnum frá stund til stundar. Það var ekki hægt að gefa henni neitt nafn, orðið var ekki til, það var bara hægt að segja að allt var rétt og hvað sem gerðist eftir þetta yrði eins og það ætti að vera. Hugur, sál og líkami voru eitt. Það var gott að finna stund þar sem hún small saman. Ísinn varð traustur í bili.

Monday, June 30, 2014

Logi

Logi

Veiðin hafði gengið vel og það var logn á stjörnubjartri heiðinni. Hreindýrin höfðu verið vel á sig komin og í fullum feldi. Félagarnir fimm sátu við eldinn saddir og friður ríkti yfir búðunum. Logi horfði með fjarænum augum í bálið og strauk um örið á hálsinum undir vinsti kjálkanum með hægri hendinni, gjöf frá eldri bróður hans. Logi hafði ekki hugmynd um að ef örlögunum hefði verið öðruvísi farið hefði hann orðið að löglega kosnum höfðingja Nyrstustrandar og skaginn hefði blómstrað í umsjón hans. Hann hefði orðið ástfanginn af prúðri stúlku, lifað hamingjusömu fjölskyldulífi og yfirgefið lífið í hárri elli sáttur, umkringdur erfingjum sem grétu för hans.
Þrír uppskerubrestir og þrír harðir vetrar höfðu séð til þess að svo yrði ekki. Í staðinn leiddi hann lítinn hóp af færum veiðimönnum með stöðuga þörf fyrir að finna einhvað, einhvað annað. Hann vissi ekki hvað og stoppaði aldrei lengi á sama stað. Innst inni vissi hann að honum hefði verið ætlað eitthvað annað.

            "í heimiun togast á tvo öfl. Það staðnaða sem bindur fólk niður og festir hugsanir í farvegi vanans, þess sem er álitið öruggt og afl frelsisins sem gefur fólki ótakmarkaðar hugsanir og þrá í eitthvað óþekkt. Við sitjum hérna allir saman, á sömubraut, gerum það sama en keyrðir áfram af sitthvorri orkunni"
Orð Ísars tufluðu ekkert sérlega hugsanir Loga og hann lítur á vin sinn sem horfir í eldinn á þess að sjá. Honum þótti ótrúlega vænt um þennan lágvaxna ljóshærða farfugl. "hvernig getur það verið" spyr hann og var skemmt" furðulegar vangaveltur Ísars og samræður voru honum gleðigjafi. Hann var góður núna og Logi ætlaði að njóta samveru við hann áður en hann hyrfi inní geðveikislegar ranghugmyndir. Hann óttaðist að einhvern tíman kæmi hann ekki til baka.

            Þeir höfðu hisst í trjáræmunni fyrir neðan holtið á þrettánda aldurs ári Loga, þá ný fluttur frá Nyrðstuströnd en Ísar á því tíunda. Drengirnir úr byggðinni fyrir neðan mættu oft drengjunum úr hæðinni og háðu við þá bardaga með skjöldum og prikum, sumir höfðu meiri segja skorið þau út eins og sverð. Allir dagar höfðu snúist um að plana hernaðaraðgerðir og eftir kvöldmat mættust fylkingarnar. Þeir höfðu allir lifað sig inní ærslaleikinn af lífi og sál.

            Eitt bjart sumarkvöld hafði Logi fengið þungt grjót í höfuðið svo blæddi úr. Lítill snoðaður gutti hafði hafði verið sá seki og hann tók á rás á eftir honum. Hinir drenginir voru of forhertir í sínu til að taka eftir atburðinum. Logi hafði elt sökudólginn lengi og trúði ekki hversu snöggur yfirferðar litli mörðurinn var. Loks fékk hann annan stein í hausinn þegar hann hafði týnt slóðinni, í þetta sinn að ofan og þarna var sá smái uppí tré. Logi hafði reynt að klöngrast á eftir honum en neðsta greinin á öspinni var of hátt uppi svo hann náði ekki taki. Hann settist fúll niður og ætlaði að klófesta hann þegar hann neyddist til að koma niður. En litli ljósi skrattinn kom ekki og þeir sátu á sínum stöðum alla nóttina, þarna byrjaði ævilöng vinátta.
"Nú það byggist allt á því hvaðan maður kemur og hver tilgangur manns er með hlutunum" Logi horfði á vin sinn enn stara sjónlaust í eldinn. Andlitið var veðurbarið, skásett blá augu og há kinnbein gáfu honum myndarlegt yfirbragð og hann óskaði þess heitt að hann yrði heill aftur svo hann gæti lifað venjulegu lífi með stúlkunni sem að hann elskaði, hann vissi að honum sveið sárt undan örlögum sínum, því Logi var kallaður Bjartur og bjartur var hann svo sannarlega.

Sunday, June 29, 2014

Falið

Falið

Í leit upp fjallstoppa og niður í hafsbotna. Leið í gegnum dimma dali og létt ganga yfir ljósa sali.

Enginn veit hvernig það lítur út og ekki allir verða þess varir. Í fjöru brýt upp öður, kanski í þeim það bærist.

Það gæti í fjallshlíðalækjum flotið eða hjartslátt sinn í flatlendisjurtum fólgið.

Gæti í fuglum flogið eða hjá stjörnum dvalið. Við öll erum að leita og finnum á sitthvorum stöðum.

Friday, June 27, 2014

Karat

Karat

Óháð ég mæti öldum, ógnandi brimi með basiskt litaða vanga. Traust sem bjarg og glitra björtu silfri. Frelsi krefsts rauðs skjaldar, hugrakkrar fegurðar. Í flæðarmálinu ber ég hann á vörunum. Andi minn glansandi klettur, klöpp á móti gríðar krafti sem angar saltur með dýpt í asanum . Sterk stoð á móti gífulega þungum þunga andstöðu.

Ófeig von knýr iðju til yrkju. Óljós ilmur skýtur streng og bærir sterkt litaðar varirnar. Uppskeru óskana ber ég á vöngunum í bjart bleikum lit. Ástríða kemur uppundir vængi mína í óþrjótandi straumi fastann við ósýnileg bönd með festu mér óþekkta. Gyltur gljái lýsir óvísa ferðaleið og í hartanu er hal sem ætíð eyðir þroti. þan fjaðra ber hugann yfir í það þráða, í það bjarta.

Óendalegt hol hvíldar í sálu að bý, hólf fyllt hamingju, heimur þar sem ég á heima í munaði og mildi, malandi í rekkju minni í ró. Varir mínar litaðar fylltum fjóla með rökkri og á vöngunum rós, rauður roði. Ég finn fró í gegnum gangandi golu með yli, í hýbíli gegndræpu, og vörmum ilmi. Yndisleg mýkt vaggar mér í blíðri snertingu. Feldur hylur mig og felur, umlykur hjartað og hlífir.

Sunday, April 13, 2014

Prettir

Hæ. Ef þú ert viðkvæm/ur fyrir bitru bragði skaltu flýta þér á annað veffang. Í áratugi hef ég verið viðskiptavinur The Body Shop. Verslanirnar í Kringlunni og á laugaveginum voru ávalt þær fyrstu sem ég heimsótti í vikulegum "verslunarferðum" mínum sem gelgja. Því sko, það var hægt að mála sig, manni bauðst hlaðborð af förðunarvörum frítt.. það var bara ekki hægt að taka dótið með sér heim en það skipti engu. 

Pepermint Reviving Leg gel. Camomile Gentle Eye Make-Up Remover. Vitamin E Tinted Moisture Lotion. Sweet Lemon Beautifying Oil. Body Butter. Strawberry Shower Gel. Lip & Cheek Stain. Vanilla Body Spray.

Bara nokkur dæmi um þær nauðsynjar frá The Body Shop í mínum skápum í dag og þegar þörf á eitthverju fleira kviknar leita ég iðulega fyrst til þeirra. Fyrirtækið hefur nokkuð myndarlega línu af vörum með Té Tré Olíu sem fær heilan vegg í verslununum svo það var bara náttúrulegt að leita þangað fyrst, fyrst þegar þörfin fyrir Té Tré Olíu steig upp.

Til sölu hjá þeim er 10 ml flaska sem kemur fyrir sjónir sem hrein olía en er í raun bara 10 ml af vatni, alkahóli, gerviefnum, öðrum olíum og svo 15% Té Tré Olía á 1390kr.

Við lestur innihalds á öðrum vörum í línunni var innihald hreinnar olíu mjög lágt og sumstaðar átti ég erfitt með að finna hana fyrir fjölda innihaldsefna.

Ég vann einu sinni í ár í apóteki og einu sinni vann ég við framleiðslu húðvara í ár. Og raun er margt í bakpokanum mínum sem gerir mig einstaklega ósaklausa, efafulla og á köflum hundleiðilega og hreint út dónalega við sölufólk. Og mig rámaði í virkilega góða náttúruvöru, sem var reyndar hætt influttingi í hruninu, en það skipti engu, ég varð að athuga!

ABC eða Austrailian Body Care býður uppá 10 ml af hreinni Té Tré Olíu á rúman 1000kr og sjampóið þeirra er 2% olía.

Síðan er gaman að geta frá því að Bifvélavirki gerði við bílinn minn fyrir 100.000kr og skilaði mér honum svo með gangtruflunum.. Til að gera langa sögu stuttu er bíllinn gott sem ónýtur og þessi maður vissi það.

Ég ætla ekki að birta nafnið hans né fyrirtæki hérna því ég er enn á að ákveða hvort ég eigi að biðjan hann fallega um peninginn til baka, mæta heim til hans með kylfu um nótt, gera um hann vel gerða FB færslu sem ég get beðið aðra að deila áfram eða hreinlega bara stofna til rifrildis við hann...

Wednesday, April 2, 2014

Að fella hugi saman


Mig skorti ekkert. Hápunktur efnahagsbólunar var í hámarki í boði ókrýnds konung Íslands og ég svaf værum blundi í alsælu fáviskunar, sátt í blindi og ábyrgðarleysi, enda eru heimskir brosmildari en snotrir, fróun egósins vakti ekki upp neinar athugasemdir. Myndin sem ég er að lýsa er Íbúð í 101 Borg Óttans, upphækkaður jeppi, partý hverja helgi, oftast tvö og síðast en ekki síst átti ég elsku sem sá fyrir mér. Yfir mig ástfangin.

Eða það taldi ég. Samband mitt við elskhuga minn var byggt á eigingirni. Ég elskaði hann á því skilyrði að hann uppfylti þarfir mínar, ef hann stóðst ekki þunga byrði af því að vera mér allt í öllu og þjóna hverri löngun sem ég vildi hafa útúr samruna lífs okkar, refsaði ég honum með kulda og svipuhöggum. Skilyrti hann, eins og ég myndi gera með tamningatrippi, til þess gefa mér allt sem ég þarfnaðist. Ég kunni ekki að elska svo ég var ekki elskuð.

Í dag er veldið hrunið og kónginum hefur verið steypt af stóli. Vasarnir eru götóttir. Ökutækið mitt gengur illa og vekur enga öfund, næstum allir myndu fara í eitthvað betra. Sjálfsumgleði mín er minni og ég er vöknuð, þegar ég sofna hrekk ég upp við martröð. Egóinu er sjaldan fullnægt og eins og með bílinn öfundar mig enginn af póstnúmerinu. Í íbúðinni minni eru aldrei partý en ég býð fólki heim og ég á enga elsku. Ég myndi aldrei vilja snýa til baka.

Hlutir á pappír líta mis vel út. Á endanum lagðist á mig þungi sem bætti sífelt á sig. Þyngdaraflinu var ekki breytt. Á endanum varð ég afvelta, varð að skera mig lausa.

Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Þótt tvær geitur eigi
og taugreftan sal,
það er þó betra en bæn.

Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Blóðugt er hjarta
þeim er biðja skal
sér í mál hvert matar.

Ég finn engin fornnorræn heilræði um hvað það þýðir raunverulega að elska og minnihluti manna vita hvernig það er gert í garð maka. Ég hef fengið tækifæri til þess að iðka raunverulega ást þannig að það má segja að ég hafi raunverulega elskað. Að láta ekki einu sinni félagskap duga. Að fá ekki sérplægni fullnægt og ekki heimta það. Að virða sjálfa mig það mikið að sýna maka mínum, og kannski ekki einu sinni það, tillitsemi og virðingu. Því sko sjáðu til, enginn sem ekki ber virðingu fyrir sjálfum sér er fær um að sýna maka sínum virðingu. Að hafa lítið sjálfstraust og lúffa í aðstæðum er ekki tillitsemi við neinn né virðing, heldur eigingirni. Að fá öllum sínum vilja framgengt og jafnvel ljúga af maka sínum er ekki að sína honum virðingaleysi, heldur sjálfum sér, og er eigingirni. Skiluru hvað ég á við?

Maki er manneskja sem þú hefur valið til þess að ganga með þér í gegnum lífið. Ef þú virðir sjálfa/n þig sýnir þú þessari manneskju ósjálfrátt virðingu og öfugt. Það er kannski auðveldara fyrir marga sem ekki sjá samhengið og skilja að sá sem virðir sig velur maka sem er verðingaverður. Þá er ég ekki að tala um þær aðstæður þegar einstaklingur finnst hann hafa verið heppinn og fengið maka sem er yfir honum hafinn. Ég get séð fyrir mér hvernig sú manneskja reynir allt til þess að láta sambandið verða árekstralaust, af ótta. Og ef þú finnur ótta við að missa maka þinn ertu að elska sjálfan þig ofar honum, því óttinn á sér rót í eigingirni og virðingarleysi við sjálfan sig. Að óttast er ekki það sama og að virða. Hérna er eigingjarni makinn ekki að elska, heldur að fróa egói sínu.

Aðeins þegar ég get elskað manneskju sem elskar mig á móti get ég talist ástfangin. Ég vil frekar vera ein en í ástlausu sambandi við maka. En þá er spurningin, er það virkilega að elska að gera þá kröfu að elskhugi minn sýni mér raunverulega ást? Oft hef ég afskráð sjálfa mig, haldið því fram við sjálfa mig, talað mig niður með að segja sjálfri mér að ég gæti ekki elskað, manngæði mín væru ekki næg. En raunveruleikinn er sá, og ég ætti ávalt að muna að ég er fyllilega fær um að elska og virkilega elska fleirri en einn. En þangað til að mér fellur hugi saman við einhvern vil ég vera ein, því þegar ég fer í sambúð í eigingirni er ég ekki ástfangin.

Þetta orðasmaband "að fella hugi saman" felur í sér hina mestu visku um hvað það er að elska og vera elskaður, þrátt fyrir að vera fornnorrænt. Stutt en einlægt eins og allt sem viðkemur hjartans málum í Íslensku samfélagi. Sannara en ástarjátningar skreyttar blómum og dýft í hunang. 

Tuesday, March 25, 2014

Visthverft viðhorf

Til að teljast til þróunarlanda þurfa lönd að uppfylla skilyrði, eða kannski réttara sagt að uppfylla ekki skilyrði. Þau þurfa að vera tæknilega vanþróuð með lága þjóðarframleiðslu á mann, búa við orkuskort, fátækt og litla eða enga menntun. 70% mannkyns býr í þróunarlandi.

Það er almennt talið að með bættum lífsgæðum og menntun öðalast konur og minnihluta hópar aukið jafnrétt en mig langar að benda þér á, kæri lesandi, að þessu er öfugt farið.
Aukið sjálfstæði á rætur að rekja til hamfara á fyrri hluta 20. aldar, Heimstyrjaldana. Karlmenn voru í meirihluta stráfeldir og teknir úr venjulegu samfélagi til þess að drepa hvorn annan. Við þetta kom í hlut kvenna að halda samfélagi gangandi, þær hlutu meira mikilvægi til þjóðarframleiðslu, ekki bara á stríðsárunum sjálfum. Samfara komu sprengingar í tækniþróun sem eftir stríð nýttust heimilum. Þarna urðu þær enn mikilvægari til gróða. Með auknum fjárráðum urðu nýr markhópur. Í kjölfari þessa jókst menntun. Sjálfstæði og blómstrandi efnahagur fylgdi og aukin lífsgæði og jafnrétti varð sem óstöðvaandi spírall, tveir hlutir sem haldast í hendur.


Ef þú dregur mig í efa skaltu lítast um. Kúgun kvenna er í hlutfalli við fátækt hvar sem er og markvist hjálpar starf, með langtíma hugsjón, beinist að bættum kjörum þeirra. Menntun þeirra. Sameinuðu þjóðirnar hafa líst því yfir að nauðgun sé vopn í stríði, til þess eins að grafa undan samfélaginu sem mest. Í Afganistan þarf að byrja á því að kenna konum að sýklar séu til, til þess eins að halda aftur af sjúkdómum og barnadauða. 

Það er almenn þekking, í 30% af heiminum, að í þessum löndum fer fram mesta mengun og eyðing lífríkis sem hefur áhrif á okkur öll. Gráðugir risar nýta sér veikleika samfélagana. Konur eru mjög ódýrt vinnuafl en á mörgum stöðum er það í þeirra hag að sjá til bættri menntun og lámarks aukningu á lífsgæðum, enn óhenntugt. Sumstaðar missa verkakonur allt uppí viku af vinnu í mánuði einungis vegna þess að þær hafa ekki aðgang af dömubindum, mjög óhenntugt. Aukin þáttaka í atvinnulífi hægir á fólksfjölgun en við erum alltof mörg ef þú vissir það ekki. Gróði þeirra fer hægt minnkandi samhliða hraða fyrr nefnds spírals.

Svo núna þykist ég, kæri lesandi, hafa sannað fyrir þér að lífvæni plánetunar til framtíðar er undir lífsgæðum kvenna. Nema náttúrulega ef þú veist ekki að fjöldadauði mannkyns er yfirvofandi. Regnskógar, sem eru drifafl vatnshringrásar, minnka um landsvæði stærra en Ísland á hverju ári og birgðir grunnvatns, sem er vantið sem er neysluhæft, fer ört minnkandi.

Svo mæli ég með að flokka rusl. Það verður bráðum skylt með lögum í þessu landi. Enda mælist Ísland með hvað mesta jafnrétti í heiminum. 
Svo langar mig svona síðast að segja þér að ég elska karlmenn. Þeir eru fallegir og ég dáist af hversu sterkir þeir eru og vildi ekki án þeirra vera, nokkurn tímann.

Sunday, March 23, 2014

Leópóld

Hann sat á hækjum sér og naut þess að ísköld hafgolan stakk andlit hans og hendur. Næturhimininn lýsti sæinn falllega upp og hann strauk hugsi um hálsinn vinstra megin undir kjálkanum með hægri hendinni. Hann hafði oft hugsað um að gefa sjálfum sér stórt og ljótt ör á þessum stað, sömu gjöf hann hafði gefið öðrum yngri bræðra sinna.

            Það truflaði ekkert sérlega hugsanir hans þegar ómur af átökum barst til vitundar hans. Leopóld stóð hægt upp, lætur braka í hálsinum, slakar á öxlunum, snýr sér við og rýnir inní myrkrið. Hann veit að mennirnir í frostnu myrkrinu eru að finna sér leið til hans og hann þarf ekkert sérlega að undirbúa sig fyrir komu þeirra.

            Svartar, háar og grannar útlínur hans bera við bjartan sjóinn og sú sýn birtist mönnunum fimm löngu áður en þeirra hans. Fanginn sem gengur fremst byrjar að væla og tautar, lágt og hátóna með sjálfum sér, hinir fjórir heyra ekki orðaskil. Þegar áfanganum er náð er þögn í hálfa stund og ekkert heyrist nema örlítið í vindinum og snökt fangans. "við náðum honum" er sagt og hestur frýsir ánægjulega einhverstaðar nærri á milli berra birkitrjáa. Leopóld setur undir sig hausinn og talar með rólegri röddu 
"Þú kaftaðir í Höfðingja, hann komst undan og fyrir það fara varirnar af."

            Fanginn tekur spettinn í flótta en hinir fjórir standa eftir og hann gengur framhjá þeim og skipar milt án þess að líta á þá "Verið snöggir og komið með hann aftur í búðirnar."
Refsingin var stöðluð, hann hvorki myrti né útskúfaði þeim sem létu undan samviskunni, þeir gerðu það margir á einhverjum tímapunkti. Því Svartur var hann kallaður og svartur var hann svo sannarlega.

Uppspuni


Hæ ég heiti Sigrún. Sumir kalla mig Siggu en það eru bara fáir sem meiga það, bara þeir sem hafa farið með mér á fyllerí fyrir árið 2003. En allir meiga kalla mig Giggu en fáir gera það. Bara þeir sem komu í skírnina mína eða  voru með mér í 1. bekk. Ég er svoldið klikkuð og hætti alltí einu ađ ganga í brjóstarhaldara fyrir tveimur árum. Um svipaðleyti og ég hætti að hlusta á rokk og byrjaði ađ reykja bláan Gold Cost. Ég er ađ skrifa þetta til að draga það að fara út í kuldan og taka strætó. Ég er sumarbarn.
Ég mun kalla þig Siggu að eilífu.
Ég veit elskan ég veit.
Viđ vorum þrjú að bíða eftir þristinum, mjög óvenjulegt. En ég lét það ekki stoppa mig í að taka smá dansspor við "Heartlight" og sparka í köggla. Ég er svoldið svona, á í vanda með hömlur.

Í þristinum eru þrjátíu skólabörn og ég er búin að reyna að standa upp fyrir þremur manneskjum en þær afþökkuðu allar sætið mitt. Ég er međ svarta augnförðun og "Heartlight" á rípít. Ég er bara meðvirk með meðvirku fólki.
Hvernig fólk kallar þig Sigrúnu Oddgeirs? Þú ert annars djarfur þvottabjörn að hætta þér svona út í þristinn.
kennarar og aðrir stofnanastarfsmenn.
Ég er á leiðinni uppá geðdeild. Ég mun koma 20 mínótum of snemma, svo um leið og ég kem ætla ég að kaupa mér Pepsi Max í sjálfsalanum og rúlla mér sígó, það minnir mig á Bylgju, svo mun ég skála til heiðurs henni. Hún er hetjan mín en veit það ekki.
Er enginn sem kallar þig Siggu Giggu?  Svo fer maður bara í úlpu þegar það er kalt úti á strætó stöð.
Ég telst í hvorugan hóp en kalla þig Sigrúnu Oddgeirs. Ég er greinilega svona virðuleg. Ertu búin að fá þér Pepsi Max?
Þú ert alltaf Gigga mín.
Þú munt alltaf vera kölluð Sigga Sól hér. Verðum að hittast áður en ég fer til eyja, svo við höfum fjóra daga þú mátt velja dag. Heppin þú.
Pepsi Maxið er neglt.
Ég hef fundið mig í allskonar "öđruvísi" aðstæðum eins og t.d. umkringd Lettnesku mafíunni í iðnaðarhverfi, um helgi, að velta fyrir mér hvort þeir viti að ég klagaði þá í lögguna. Ég var ekkert hrædd. Alveg satt.
Ég kalla þig Siggu þótt ég hafi ekki farið á fyllerí með þér fyrir 2003. Breaking the rules!
Ég heiti Guðlaug en sumir kalla mig Gulla. I don´t like them.
Ég hef svikið elskhuga, alveg satt, stakk hann blákalt í bakið átta sinnum og sé ekkert eftir því. Ef þú verður einhvern tímann kærastinn minn áttu eftir að kynnast einni leið hvernig vandamálið mitt með hömlur brýst út. Þú átt ekki eftir að fá svefnfrið, sérstaklega ef þú ert mesomorph í kjörþyngd. Þetta leggst mismunandi í menn. Ég hitti einu sinni gaur sem er alveg eins og ég en þađ er verið að vísa honum úr landi fyrir ofbeldisglæp.
Mér líst ekkert á þetta "stinga í bakið átta sinnum" dæmi. Er það ekki bara í fortíðinni? Og á það bara við um elskhuga? Mér maður þá safe sem vinur þinn
Vona að listrænu skrifin mín hafi ekki hrætt neinn. En enginn mun finna neinn sem segir að ég hafi stungið sig í bakið og ekki átt það skilið.
 Það er reyndar ekki auðvelt að hræða mig ungfrú. Auga fyrir auga.