Hæ ég heiti Sigrún. Sumir kalla mig Siggu en það eru bara
fáir sem meiga það, bara þeir sem hafa farið með mér á fyllerí fyrir árið 2003.
En allir meiga kalla mig Giggu en fáir gera það. Bara þeir sem komu í skírnina
mína eða voru með mér í 1. bekk. Ég er svoldið
klikkuð og hætti alltí einu ađ ganga í brjóstarhaldara fyrir tveimur árum. Um
svipaðleyti og ég hætti að hlusta á rokk og byrjaði ađ reykja bláan Gold Cost.
Ég er ađ skrifa þetta til að draga það að fara út í kuldan og taka strætó. Ég
er sumarbarn.
Ég mun kalla þig Siggu að eilífu.
Ég veit elskan ég veit.
Viđ vorum þrjú að bíða eftir þristinum, mjög óvenjulegt. En
ég lét það ekki stoppa mig í að taka smá dansspor við "Heartlight" og
sparka í köggla. Ég er svoldið svona, á í vanda með hömlur.
Í þristinum eru þrjátíu skólabörn og ég er búin að reyna að
standa upp fyrir þremur manneskjum en þær afþökkuðu allar sætið mitt. Ég er međ
svarta augnförðun og "Heartlight" á rípít. Ég er bara meðvirk með meðvirku
fólki.
Hvernig fólk kallar þig Sigrúnu Oddgeirs? Þú ert annars djarfur þvottabjörn að hætta þér svona út í þristinn.
kennarar og aðrir stofnanastarfsmenn.
Ég er á leiðinni uppá geðdeild. Ég mun koma 20 mínótum of
snemma, svo um leið og ég kem ætla ég að kaupa mér Pepsi Max í sjálfsalanum og
rúlla mér sígó, það minnir mig á Bylgju, svo mun ég skála til heiðurs henni.
Hún er hetjan mín en veit það ekki.
Er enginn sem kallar þig Siggu Giggu? Svo fer maður bara í úlpu þegar það er kalt úti á strætó stöð.
Ég telst í hvorugan hóp en kalla þig Sigrúnu Oddgeirs. Ég er greinilega svona virðuleg. Ertu búin að fá þér Pepsi Max?
Þú ert alltaf Gigga mín.
Þú munt alltaf vera kölluð Sigga Sól hér. Verðum að hittast áður en ég fer til eyja, svo við höfum fjóra daga þú mátt velja dag. Heppin þú.
Pepsi Maxið er neglt.
Ég hef fundið mig í allskonar "öđruvísi" aðstæðum
eins og t.d. umkringd Lettnesku mafíunni í iðnaðarhverfi, um helgi, að velta
fyrir mér hvort þeir viti að ég klagaði þá í lögguna. Ég var ekkert hrædd.
Alveg satt.
Ég kalla þig Siggu þótt ég hafi ekki farið á fyllerí með þér fyrir 2003. Breaking the rules!
Ég heiti Guðlaug en sumir kalla mig Gulla. I don´t like them.
Ég hef svikið elskhuga, alveg satt, stakk hann blákalt
í bakið átta sinnum og sé ekkert eftir því. Ef þú verður einhvern tímann
kærastinn minn áttu eftir að kynnast einni leið hvernig vandamálið mitt með
hömlur brýst út. Þú átt ekki eftir að fá svefnfrið, sérstaklega ef þú ert mesomorph
í kjörþyngd. Þetta leggst mismunandi í menn. Ég hitti einu sinni gaur sem er
alveg eins og ég en þađ er verið að vísa honum úr landi fyrir ofbeldisglæp.
Mér líst ekkert á þetta "stinga í bakið átta sinnum" dæmi. Er það ekki bara í fortíðinni? Og á það bara við um elskhuga? Mér maður þá safe sem vinur þinn
Vona að listrænu skrifin mín hafi ekki hrætt neinn. En enginn mun finna neinn sem segir að ég hafi stungið sig í bakið og ekki átt það skilið.
Það er reyndar ekki auðvelt að hræða mig ungfrú. Auga fyrir auga.
No comments:
Post a Comment