Sunday, March 1, 2015

Já þetta er til þín

Með dagrenningunni 
talar engin rödd,
hún stendur eiginlega eins og klunni
og það eru enginn köll.

Það er enn vetur 
svo það er kalt
og hún veit að hún getur betur
en ástin hefur bara verið sett í salt.

Hlýjan hefur vikið fyrir frera
og hann er stingandi hvass,
vill í þig skera;
þú ert fokking hlass. 

Take care


The one who did not see that one coming.

Wednesday, February 11, 2015

Annar draumur

Ég vakna um miðja nótt.
Sólin sést ekki, þó það sé bjart;
er mér ekki rótt.

Ég lygg úti á grænu engi,
loftið er svalt.
Hlýt að hafa legið hér lengi
því mér er kalt.

Ferskur birki ilmur
yfir lyggur
og smáfuglinn örlítið syngur.

Eitthvað í grasinu er að iða,
Ekkert hljóð bara stráin bifast.
Hjarta mitt er ekki griðað
svo í kringum mig skimast.

Ekki sálu að sjá.
Hér er tómt,
hérna þar sem ég lá.

Kvikindið nær færist,
voða hægt í sveigum.
Ég hræðist,
það skríður áfram í beygjum.

Vona að það sjáist brátt til sólar,
hér get ég ekki verið,
Mig langar heim í Spóahóla.

gigga

Sunday, February 1, 2015

Hvíldu í friði

Vinkona mín er að fara,
við það byrjar þessi saga.

Hún kom um nætur
og hafði á mér miklar mætur.

Klæddi mig klakabrynju,
ég gaf því ekki synjun.

Í hjartað blés bál
sem logaði í minni sál.

Þá hafði ég enga stjórn
og því fylgdi mikil fórn.

Þó að sjálfið varð frosnað,
glöð greiddi þann kostnað.

Nú er að renna upp sumarnótt
svo hún getur mig ekki sótt.

Það eru engir skuggar,
henni tekst ekki í öxl mína að glugga.

En svona er nú himinhvolfið
í þessu landi elda og ísa.

H.Í.F skvísa

gigga

Tuesday, January 20, 2015

Draumurinn um Valda

Við sólsetur kom hann
og ég vissi strax að hann táknaði mann

Himininn var að verða blakkur,
drekinn var svartur.

Stór með gríðarlegt vænghaf
og hryllilegt öskur frá sér gaf.

Á jörðina lennti,
spjó eldi svo frá ég mér henti.

Þó ég hefði sverð í hendi
sá ég að í dauða minn stefni.

Svo baráttan hófst
og hiti í leikinn skarst fljótt.

Með snerpu ég orminn vó
en enn sást ekki sól.

Alvaldið hafði svarað mínum bænum
en nú niður rigndi drekafræjum.