Þú þarft:
700 - 1000 ml vatn í miðlungspotti
4 geira af hvítlauk
2 kjúklingaleggi
Baunaspírur
Púrrulauk (val)
Steiktan hvítlauk (fæst í Mai Thai)
Hrísgrjónanúðlur
Sojasósu (góð sletta eða tvær)
Fiskisósu (um helmingi minna en af sojasósunni)
Kjúklingakraft (1/2 teningur)
Rauðvínsedik (lítil skvetta)
Kryddin: (setjið sirka 1/4 af teskeið af hvoru nema meira af kanilnum, gott er að setja hann seinast og smakka til.)
Kardímonnur
Múskat
Negull (malaður)
Kanill
Engifer
Allrahanda
Cyannepipar
Cumin
Setjið kjúklingaleggina í pottinn og látið suðu koma upp. Rífið þá hvítlauksgeirana og setjið út í og látið sjóða með þangað til kjötið byrjar að losna aðeins frá beinunum. Losið síðan kjötið af og takið beinin uppúr.
Bætið síðan öllu við og stráið steikta hvítlauknum, púrrunni og baunaspírunum yfir, þegar súpan er komin í skálina, eftir smekk.
Vatnið sýður vel niður svo þetta passar í einn stóran skammt. Munið að hrísgrjónanúðlur þurfa lengri suðu en venjulegar núðlur.
Þið getið leikið ykkur með hlutfall kryddana eins og ykkur finnst passa.
Tuesday, November 25, 2014
Thursday, November 20, 2014
Gæðingur
Taktfastur hrynjandi,
samfeldur í áleitnum straum
og blæs svalandi andvari.
Sörli er léttur í taum.
Samhljómur iðandi,
takturinn er flæðandi afl
sem er seiðandi lifandi
í fjórtaktandi fall
Djúpur hófadynur,
áframlíðandi er sláttur.
Í jörðinni magnast glymur
og drösullinn er sáttur.
gigga
Wednesday, November 12, 2014
Ríma
Ég hef ekkert að yrkja,
kvöldin eru löng.
Þótt reyni hana að styrkja
er sálin enn svöng.
Þyngsli á mér lyggja
og veröldin ströng,
ég vil það syrgja
að hugsun mín er röng.
Vill inni byrgja
og horfa í gegnum göng,
gleðina myrja;
neita að syngja söng.
Bara til nátta kyrja:
lífsins leið er þröng.
gigga
Wednesday, November 5, 2014
Músaskelfir
Með þér er léttir,
í hlýju að lúra.
Það er gott að kúra
eins og tveir kettir.
Í friði í ró,
það alger sæla
og hin mesta fró
ekkert að pæla.
Núna syrja mig:
Hver gefur frið,
er maður þér við hlið?
er maður þér við hlið?
Nei frá þeim hef grið.
Feldur mig hylur,
felur og hlífir.
hér er enginn bylur,
kisu með hvíli.
gigga
Saturday, November 1, 2014
Annað bréf til Láru
Helduru að ég sætti mig við að þú viljir ekki hafa til mín skyldur, hugnast ekki að hafa mig systur?
Þú ert hættur að sjá mig, heldur að ég geti tekið allt. Þú hefur ekki hugmynd um hvað ég vinn hart.
Hef mikið fyrir því að halda í minn kraft.
Gengur út frá því að minn kærleikur sé í botnlausum bikar, að ég geti tekið margar svikar.
Gengur út frá því að minn kærleikur sé í botnlausum bikar, að ég geti tekið margar svikar.
Hver helduru að þú sért og hvaða rétt hefuru, hvað hefuru til þess gert.
Ótal sinnum hef ég séð þína köldu hlið og nú færðu að sjá mína hina, vörnina mína.
Sigrún er ekki hér, í nótt býr annað nafn í mér.
Hefuru elskað svo heitt að þú myndir fyrir gefa hendi? Ekki orðatiltækið, nei, bókstaflega alveg sama hvað þig fyrir henti?
Að vita að þau eru þitt hjarta, þú þeirra brynja og vega alla sem ekki vilja þeim það bjarta?
Hvað gerist þegar þú verður uppspretta sársaukans til náungans?
Karma snýr sér við og þig bítur og allt sem þú fyrir stendur þig fyrirlítur?
Hvað ætlaru að gera þegar þú ert fíblið? Mæta þér sjálfum eða blindast og gera lítið?
Hvað geruru þegar aðrir líta frá þér í hina áttina og leita ekki í sáttina?
Munt þú líta í þitt auga eða á aðra benda og saurga?
Ertu djarfur eða heigull og skarfur?
gigga
Subscribe to:
Comments (Atom)