Thursday, August 14, 2014

Bréf til Láru

kafli 1.



Ég var bara 6 ára þegar ég var spurð fyrst hvort það mætti afmeyja mig,
13 ára þegar einhver spurði hvort ég vildi totta sig.
Hann síðan lamdi mig, í tvo tíma.

Sá fyrsti sem kyssti mig byrjaði síðan að vinna í grunnskólanum mínum.
Hann horfði aldrei á mig með augunum sínum.

Eitt og tvo komust ekki inn,
tíminn var ekki minn.
Þrjú afneitaði mér og fjögur hélt framhjá mér.
Restina ekki man ég.
Heima var ég áfram barin,
það fylgir elsku að vera lamin.

Fann eitt sinn öruggt skjól en þegar einhver næstum dó,
sagði hann mér að trufla sig ekki hann vildi ró.
Í 7 ár ég talaði við vegg, síðan tók ég minn segg.
Númer átta vil ég ekki segja frá.

Það breynglaða er að ég held að skömmin sé mín,
ég vissi ekki betur, var bara seventeen.

Ég hef frá svo miklu að segja.
Það gerðist svo miklu fleirra.

Þó öskufall kemur svift,
skín í gegnum myrkrið sem lyggur á mér eins og sót,
helduru að það sé tilviljun að ég sé kölluð Sigga Sól?
Svo ef þú ætlar að dæma mig haltu kjafti,
ég keppi í þungavigt og er ekki hætta við falli.

Helvítis bjartsýni alltaf hreint...

Orð mín fjúka á þig eins og vindur,
sorry en þú átt ekki séns í mig vinur
og ert varla syndur.


Kafli 2.


14 heimili á 18 árum, 5 skólar á 10 árum. 
Finnst þér skrítið að ég missti vitið þakin sárum.

Fæ að vera með en ekki tilheyra
og fólk gapir þegar ég fæ minn veruleika að segja.

Klukkan 10 um kvöld árið 2010 heyrðist brothljóðið og ég brast,
shit þá varð mikið brask.
Og ég drakk.

Nú kemur önnur saga. 
Sjáðu sko, þeir sem feta grýtta leið malla ekki bragðgoðan seið
og aðrir frá sér þeim baða.
Þannig er sú saga, svoldið illagerð skrítla,
verðum svoldið erfið og fólk yfir okkur haus sinn hrista.
Segir okkur ekki á Guð treysta.

Hann getur fokkað sér því við eftiköstin leikum,
þannig er það í öllum veruleikum.
Kostnaður sem greiðist ekki léttum leikum.

Þú segir mér að honum þurfi ég að þjóna,
fyrir honum þurfi enn og aftur á hnjánum skríða
og biðja mér vægðar fyrir sárum sem svíða.
Ævin má ekki vera innan minna sjóna.

Að ég sé vandamálið, að við mig sé að sakast.
Enn og aftur sagt að sjálf mitt sé ekki rétt bakað.
Hættu nú því þetta á ekki við
hvað sum okkar varðar.

Kafli 3.


Það var ekki hann sem tókst að byrja að ná mér tilbaka,
flétta ofan af stelpunni sem lyggur í hnipri, heldur um höfuð sitt öskrandi.
Ærð, sturluð, farin á mis og næstum dáin.
Það var læknir sem snerti mig og með mjúkum höndum og umlék mig
og sagði mér að hugsa á allt annan hátt.
Í fyrsta skipti var mér sagt að vinna ekki harðar
heldur að slappa af og láta mig mildi varða.

Ég reyndi Guðinn þinn, vann dag og nótt.
Honum gaf lífið og eins og sauður skreið á hnjánum.
Hirðinn elti og veistu hvar það endaði?
Í faðminum á númer átta.
Ég get ekki annað en hlegið.

Ég fann það sem þú sagðir mér að finna.
handleiðsluna sem ég mátti ekki hunsa því annars myndi ég deyja.
Vildi ekki taka stjórnina af ótta við að fá ekki það sem ég þurfti.
Það sem ég grátbað um.

Ég komst af því að það eru bara tilviljanir, engin Guðleg handleiðsla,bara óskhyggja og val.
Finnum það sem við leitum af ef við leitum nógu lengi.
Það bara gerist, hefur ekkert með meintan algóðan Guð að gera.
Ekki segja mér að þetta hafi ekkert með mig að gera,
ég vann hart að þessu.

En ég skal vera sanngjörn og segja þér að þetta hefur líka við þig að gera.
Þú tókst við símtölum mínum og studdir á milli viðtalstíma.
Ég mun líka alltaf styðja þig því við leitum að því sama.
Þó þú skiljir ekki það sem ég skil.

Ég held stundum að ég sé að gefast upp.

Ég fer samt stundum á hnéin
í vonum að hann sé þarna.
Sögurnar um hann eru góðar vögguvisur.

Get unnið og elskað úr mér hjartað og samt verið slegin. 
Það skiptir litlu.
Það er betra að geta leitað tl þín í skamma stund stundum.

Friday, July 25, 2014

Sigrún

Sigrún

Þegar hún kom að vatninu var hún búin að finna fyrir hjartslátti sínum í svolítinn tíma. Tauga- og vöðvaspenna höfðu fengið hana til þess að afþakka boð um far niður eftir, vildi ganga. Dagurinn hafði verið góður en fylgt höfðu sterkar tilfiningar. Hún tilheyrði ákveðinni gerð af mannverum. Þeirri sem finna of mikið. Þetta gerði þær oft örþreyttar. 

Lífsförin var ganga yfir þunna ísbreiðu. Brak og sprunguhljóð gáfu stöðuga áminningu um að á hverri stundu myndi undirstaðan gefa undan, þetta var ekki spurning um hvort heldur hvernær. Hvert skref var áhætta og fyrir neðan beið ólgandi vatn sem var svo kalt að það stakk. Þá tók ekkert við nema baráttan í gegnum sársaukann af þúsund stungum og andköfum, að komast aftur uppá breiðuna og síðan halda göngunni áfram, með sinni sögu. Styrjöld um lífið.Margir af þessari tegund örmögnuðust, gáfu eftir fyrir djúpinu fyrir neðan. Hún velti því stundum fyrir sér hvort styrkur hennar myndi einn daginn fjara út. 

Eitt sinn hafði hún dottið í sjóinn, þá hafði sjokkið kveikt upp gífurlega gífulegri orku og lífsþrá. Léttirinn við að ná að klifra aftur upp á hafnarbakkan og þakklætið sem kom yfir fyrir að hafa kynnst þessari reynslu sat í minni. Þetta var ekki ósvipað.

Í kringum vatnið voru fallegar hvannir á milli maríustakka. Lyktin var góð og ásjónan falleg. Við bakkan stóð anda, reist með gogginn upp í loft, og litaðist um. Hún var að standa vörð á meðan ungarnir hennar busluðu og vöppuðu um. Sigrún kraup niður og fylgdist með móðurinni. Horfði á hvernig hún geislaði af sjálfstrausti, hvernig hún hafði stjórn á aðstæðum sínum. Treysti á ekkert nema eigin færni, einginn sá um fyrir henni og hennar. Þessi stund friðaði Sigrúnu, hringiðjan innra með henni tók að hægja á sér og taka á sig mynd. Tilfiningin breiddist út um líkamann og dreifði fiðrildum út um líkamann undir húðinni. Og þrátt fyrir að hún sveið, fylgdi henni ró og vellíðan.

Framkvæmdir dagsins höfðu kallað á herðingu hugans og hugrekki til þess að taka nokkur spor áfram, að vera eins og andan. Andlitið byrjaði að mynda vís af grettu og varirnar, sem báru dökkbleikan lit, tóku að titra og tilfiningin heltók hana svo ekkert annað rúmaðist fyrir innan og hún skynjaði ekkert annað en fegurð orkunar.

Það er til saga af blómálfi, með vængi, sem var svo lítil að hún gat bara rúmað eina tilfiningu í einu. 

Þetta var svolítið þannig og var ljúfur léttir undan hinni vanalegu ólgu af þúsund tilfiningum sem blikknuðu ótal sinnum frá stund til stundar. Það var ekki hægt að gefa henni neitt nafn, orðið var ekki til, það var bara hægt að segja að allt var rétt og hvað sem gerðist eftir þetta yrði eins og það ætti að vera. Hugur, sál og líkami voru eitt. Það var gott að finna stund þar sem hún small saman. Ísinn varð traustur í bili.

Monday, June 30, 2014

Logi

Logi

Veiðin hafði gengið vel og það var logn á stjörnubjartri heiðinni. Hreindýrin höfðu verið vel á sig komin og í fullum feldi. Félagarnir fimm sátu við eldinn saddir og friður ríkti yfir búðunum. Logi horfði með fjarænum augum í bálið og strauk um örið á hálsinum undir vinsti kjálkanum með hægri hendinni, gjöf frá eldri bróður hans. Logi hafði ekki hugmynd um að ef örlögunum hefði verið öðruvísi farið hefði hann orðið að löglega kosnum höfðingja Nyrstustrandar og skaginn hefði blómstrað í umsjón hans. Hann hefði orðið ástfanginn af prúðri stúlku, lifað hamingjusömu fjölskyldulífi og yfirgefið lífið í hárri elli sáttur, umkringdur erfingjum sem grétu för hans.
Þrír uppskerubrestir og þrír harðir vetrar höfðu séð til þess að svo yrði ekki. Í staðinn leiddi hann lítinn hóp af færum veiðimönnum með stöðuga þörf fyrir að finna einhvað, einhvað annað. Hann vissi ekki hvað og stoppaði aldrei lengi á sama stað. Innst inni vissi hann að honum hefði verið ætlað eitthvað annað.

            "í heimiun togast á tvo öfl. Það staðnaða sem bindur fólk niður og festir hugsanir í farvegi vanans, þess sem er álitið öruggt og afl frelsisins sem gefur fólki ótakmarkaðar hugsanir og þrá í eitthvað óþekkt. Við sitjum hérna allir saman, á sömubraut, gerum það sama en keyrðir áfram af sitthvorri orkunni"
Orð Ísars tufluðu ekkert sérlega hugsanir Loga og hann lítur á vin sinn sem horfir í eldinn á þess að sjá. Honum þótti ótrúlega vænt um þennan lágvaxna ljóshærða farfugl. "hvernig getur það verið" spyr hann og var skemmt" furðulegar vangaveltur Ísars og samræður voru honum gleðigjafi. Hann var góður núna og Logi ætlaði að njóta samveru við hann áður en hann hyrfi inní geðveikislegar ranghugmyndir. Hann óttaðist að einhvern tíman kæmi hann ekki til baka.

            Þeir höfðu hisst í trjáræmunni fyrir neðan holtið á þrettánda aldurs ári Loga, þá ný fluttur frá Nyrðstuströnd en Ísar á því tíunda. Drengirnir úr byggðinni fyrir neðan mættu oft drengjunum úr hæðinni og háðu við þá bardaga með skjöldum og prikum, sumir höfðu meiri segja skorið þau út eins og sverð. Allir dagar höfðu snúist um að plana hernaðaraðgerðir og eftir kvöldmat mættust fylkingarnar. Þeir höfðu allir lifað sig inní ærslaleikinn af lífi og sál.

            Eitt bjart sumarkvöld hafði Logi fengið þungt grjót í höfuðið svo blæddi úr. Lítill snoðaður gutti hafði hafði verið sá seki og hann tók á rás á eftir honum. Hinir drenginir voru of forhertir í sínu til að taka eftir atburðinum. Logi hafði elt sökudólginn lengi og trúði ekki hversu snöggur yfirferðar litli mörðurinn var. Loks fékk hann annan stein í hausinn þegar hann hafði týnt slóðinni, í þetta sinn að ofan og þarna var sá smái uppí tré. Logi hafði reynt að klöngrast á eftir honum en neðsta greinin á öspinni var of hátt uppi svo hann náði ekki taki. Hann settist fúll niður og ætlaði að klófesta hann þegar hann neyddist til að koma niður. En litli ljósi skrattinn kom ekki og þeir sátu á sínum stöðum alla nóttina, þarna byrjaði ævilöng vinátta.
"Nú það byggist allt á því hvaðan maður kemur og hver tilgangur manns er með hlutunum" Logi horfði á vin sinn enn stara sjónlaust í eldinn. Andlitið var veðurbarið, skásett blá augu og há kinnbein gáfu honum myndarlegt yfirbragð og hann óskaði þess heitt að hann yrði heill aftur svo hann gæti lifað venjulegu lífi með stúlkunni sem að hann elskaði, hann vissi að honum sveið sárt undan örlögum sínum, því Logi var kallaður Bjartur og bjartur var hann svo sannarlega.

Sunday, June 29, 2014

Falið

Falið

Í leit upp fjallstoppa og niður í hafsbotna. Leið í gegnum dimma dali og létt ganga yfir ljósa sali.

Enginn veit hvernig það lítur út og ekki allir verða þess varir. Í fjöru brýt upp öður, kanski í þeim það bærist.

Það gæti í fjallshlíðalækjum flotið eða hjartslátt sinn í flatlendisjurtum fólgið.

Gæti í fuglum flogið eða hjá stjörnum dvalið. Við öll erum að leita og finnum á sitthvorum stöðum.

Friday, June 27, 2014

Karat

Karat

Óháð ég mæti öldum, ógnandi brimi með basiskt litaða vanga. Traust sem bjarg og glitra björtu silfri. Frelsi krefsts rauðs skjaldar, hugrakkrar fegurðar. Í flæðarmálinu ber ég hann á vörunum. Andi minn glansandi klettur, klöpp á móti gríðar krafti sem angar saltur með dýpt í asanum . Sterk stoð á móti gífulega þungum þunga andstöðu.

Ófeig von knýr iðju til yrkju. Óljós ilmur skýtur streng og bærir sterkt litaðar varirnar. Uppskeru óskana ber ég á vöngunum í bjart bleikum lit. Ástríða kemur uppundir vængi mína í óþrjótandi straumi fastann við ósýnileg bönd með festu mér óþekkta. Gyltur gljái lýsir óvísa ferðaleið og í hartanu er hal sem ætíð eyðir þroti. þan fjaðra ber hugann yfir í það þráða, í það bjarta.

Óendalegt hol hvíldar í sálu að bý, hólf fyllt hamingju, heimur þar sem ég á heima í munaði og mildi, malandi í rekkju minni í ró. Varir mínar litaðar fylltum fjóla með rökkri og á vöngunum rós, rauður roði. Ég finn fró í gegnum gangandi golu með yli, í hýbíli gegndræpu, og vörmum ilmi. Yndisleg mýkt vaggar mér í blíðri snertingu. Feldur hylur mig og felur, umlykur hjartað og hlífir.

Sunday, April 13, 2014

Prettir

Hæ. Ef þú ert viðkvæm/ur fyrir bitru bragði skaltu flýta þér á annað veffang. Í áratugi hef ég verið viðskiptavinur The Body Shop. Verslanirnar í Kringlunni og á laugaveginum voru ávalt þær fyrstu sem ég heimsótti í vikulegum "verslunarferðum" mínum sem gelgja. Því sko, það var hægt að mála sig, manni bauðst hlaðborð af förðunarvörum frítt.. það var bara ekki hægt að taka dótið með sér heim en það skipti engu. 

Pepermint Reviving Leg gel. Camomile Gentle Eye Make-Up Remover. Vitamin E Tinted Moisture Lotion. Sweet Lemon Beautifying Oil. Body Butter. Strawberry Shower Gel. Lip & Cheek Stain. Vanilla Body Spray.

Bara nokkur dæmi um þær nauðsynjar frá The Body Shop í mínum skápum í dag og þegar þörf á eitthverju fleira kviknar leita ég iðulega fyrst til þeirra. Fyrirtækið hefur nokkuð myndarlega línu af vörum með Té Tré Olíu sem fær heilan vegg í verslununum svo það var bara náttúrulegt að leita þangað fyrst, fyrst þegar þörfin fyrir Té Tré Olíu steig upp.

Til sölu hjá þeim er 10 ml flaska sem kemur fyrir sjónir sem hrein olía en er í raun bara 10 ml af vatni, alkahóli, gerviefnum, öðrum olíum og svo 15% Té Tré Olía á 1390kr.

Við lestur innihalds á öðrum vörum í línunni var innihald hreinnar olíu mjög lágt og sumstaðar átti ég erfitt með að finna hana fyrir fjölda innihaldsefna.

Ég vann einu sinni í ár í apóteki og einu sinni vann ég við framleiðslu húðvara í ár. Og raun er margt í bakpokanum mínum sem gerir mig einstaklega ósaklausa, efafulla og á köflum hundleiðilega og hreint út dónalega við sölufólk. Og mig rámaði í virkilega góða náttúruvöru, sem var reyndar hætt influttingi í hruninu, en það skipti engu, ég varð að athuga!

ABC eða Austrailian Body Care býður uppá 10 ml af hreinni Té Tré Olíu á rúman 1000kr og sjampóið þeirra er 2% olía.

Síðan er gaman að geta frá því að Bifvélavirki gerði við bílinn minn fyrir 100.000kr og skilaði mér honum svo með gangtruflunum.. Til að gera langa sögu stuttu er bíllinn gott sem ónýtur og þessi maður vissi það.

Ég ætla ekki að birta nafnið hans né fyrirtæki hérna því ég er enn á að ákveða hvort ég eigi að biðjan hann fallega um peninginn til baka, mæta heim til hans með kylfu um nótt, gera um hann vel gerða FB færslu sem ég get beðið aðra að deila áfram eða hreinlega bara stofna til rifrildis við hann...

Wednesday, April 2, 2014

Að fella hugi saman


Mig skorti ekkert. Hápunktur efnahagsbólunar var í hámarki í boði ókrýnds konung Íslands og ég svaf værum blundi í alsælu fáviskunar, sátt í blindi og ábyrgðarleysi, enda eru heimskir brosmildari en snotrir, fróun egósins vakti ekki upp neinar athugasemdir. Myndin sem ég er að lýsa er Íbúð í 101 Borg Óttans, upphækkaður jeppi, partý hverja helgi, oftast tvö og síðast en ekki síst átti ég elsku sem sá fyrir mér. Yfir mig ástfangin.

Eða það taldi ég. Samband mitt við elskhuga minn var byggt á eigingirni. Ég elskaði hann á því skilyrði að hann uppfylti þarfir mínar, ef hann stóðst ekki þunga byrði af því að vera mér allt í öllu og þjóna hverri löngun sem ég vildi hafa útúr samruna lífs okkar, refsaði ég honum með kulda og svipuhöggum. Skilyrti hann, eins og ég myndi gera með tamningatrippi, til þess gefa mér allt sem ég þarfnaðist. Ég kunni ekki að elska svo ég var ekki elskuð.

Í dag er veldið hrunið og kónginum hefur verið steypt af stóli. Vasarnir eru götóttir. Ökutækið mitt gengur illa og vekur enga öfund, næstum allir myndu fara í eitthvað betra. Sjálfsumgleði mín er minni og ég er vöknuð, þegar ég sofna hrekk ég upp við martröð. Egóinu er sjaldan fullnægt og eins og með bílinn öfundar mig enginn af póstnúmerinu. Í íbúðinni minni eru aldrei partý en ég býð fólki heim og ég á enga elsku. Ég myndi aldrei vilja snýa til baka.

Hlutir á pappír líta mis vel út. Á endanum lagðist á mig þungi sem bætti sífelt á sig. Þyngdaraflinu var ekki breytt. Á endanum varð ég afvelta, varð að skera mig lausa.

Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Þótt tvær geitur eigi
og taugreftan sal,
það er þó betra en bæn.

Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Blóðugt er hjarta
þeim er biðja skal
sér í mál hvert matar.

Ég finn engin fornnorræn heilræði um hvað það þýðir raunverulega að elska og minnihluti manna vita hvernig það er gert í garð maka. Ég hef fengið tækifæri til þess að iðka raunverulega ást þannig að það má segja að ég hafi raunverulega elskað. Að láta ekki einu sinni félagskap duga. Að fá ekki sérplægni fullnægt og ekki heimta það. Að virða sjálfa mig það mikið að sýna maka mínum, og kannski ekki einu sinni það, tillitsemi og virðingu. Því sko sjáðu til, enginn sem ekki ber virðingu fyrir sjálfum sér er fær um að sýna maka sínum virðingu. Að hafa lítið sjálfstraust og lúffa í aðstæðum er ekki tillitsemi við neinn né virðing, heldur eigingirni. Að fá öllum sínum vilja framgengt og jafnvel ljúga af maka sínum er ekki að sína honum virðingaleysi, heldur sjálfum sér, og er eigingirni. Skiluru hvað ég á við?

Maki er manneskja sem þú hefur valið til þess að ganga með þér í gegnum lífið. Ef þú virðir sjálfa/n þig sýnir þú þessari manneskju ósjálfrátt virðingu og öfugt. Það er kannski auðveldara fyrir marga sem ekki sjá samhengið og skilja að sá sem virðir sig velur maka sem er verðingaverður. Þá er ég ekki að tala um þær aðstæður þegar einstaklingur finnst hann hafa verið heppinn og fengið maka sem er yfir honum hafinn. Ég get séð fyrir mér hvernig sú manneskja reynir allt til þess að láta sambandið verða árekstralaust, af ótta. Og ef þú finnur ótta við að missa maka þinn ertu að elska sjálfan þig ofar honum, því óttinn á sér rót í eigingirni og virðingarleysi við sjálfan sig. Að óttast er ekki það sama og að virða. Hérna er eigingjarni makinn ekki að elska, heldur að fróa egói sínu.

Aðeins þegar ég get elskað manneskju sem elskar mig á móti get ég talist ástfangin. Ég vil frekar vera ein en í ástlausu sambandi við maka. En þá er spurningin, er það virkilega að elska að gera þá kröfu að elskhugi minn sýni mér raunverulega ást? Oft hef ég afskráð sjálfa mig, haldið því fram við sjálfa mig, talað mig niður með að segja sjálfri mér að ég gæti ekki elskað, manngæði mín væru ekki næg. En raunveruleikinn er sá, og ég ætti ávalt að muna að ég er fyllilega fær um að elska og virkilega elska fleirri en einn. En þangað til að mér fellur hugi saman við einhvern vil ég vera ein, því þegar ég fer í sambúð í eigingirni er ég ekki ástfangin.

Þetta orðasmaband "að fella hugi saman" felur í sér hina mestu visku um hvað það er að elska og vera elskaður, þrátt fyrir að vera fornnorrænt. Stutt en einlægt eins og allt sem viðkemur hjartans málum í Íslensku samfélagi. Sannara en ástarjátningar skreyttar blómum og dýft í hunang.