Friday, July 25, 2014

Sigrún

Sigrún

Þegar hún kom að vatninu var hún búin að finna fyrir hjartslátti sínum í svolítinn tíma. Tauga- og vöðvaspenna höfðu fengið hana til þess að afþakka boð um far niður eftir, vildi ganga. Dagurinn hafði verið góður en fylgt höfðu sterkar tilfiningar. Hún tilheyrði ákveðinni gerð af mannverum. Þeirri sem finna of mikið. Þetta gerði þær oft örþreyttar. 

Lífsförin var ganga yfir þunna ísbreiðu. Brak og sprunguhljóð gáfu stöðuga áminningu um að á hverri stundu myndi undirstaðan gefa undan, þetta var ekki spurning um hvort heldur hvernær. Hvert skref var áhætta og fyrir neðan beið ólgandi vatn sem var svo kalt að það stakk. Þá tók ekkert við nema baráttan í gegnum sársaukann af þúsund stungum og andköfum, að komast aftur uppá breiðuna og síðan halda göngunni áfram, með sinni sögu. Styrjöld um lífið.Margir af þessari tegund örmögnuðust, gáfu eftir fyrir djúpinu fyrir neðan. Hún velti því stundum fyrir sér hvort styrkur hennar myndi einn daginn fjara út. 

Eitt sinn hafði hún dottið í sjóinn, þá hafði sjokkið kveikt upp gífurlega gífulegri orku og lífsþrá. Léttirinn við að ná að klifra aftur upp á hafnarbakkan og þakklætið sem kom yfir fyrir að hafa kynnst þessari reynslu sat í minni. Þetta var ekki ósvipað.

Í kringum vatnið voru fallegar hvannir á milli maríustakka. Lyktin var góð og ásjónan falleg. Við bakkan stóð anda, reist með gogginn upp í loft, og litaðist um. Hún var að standa vörð á meðan ungarnir hennar busluðu og vöppuðu um. Sigrún kraup niður og fylgdist með móðurinni. Horfði á hvernig hún geislaði af sjálfstrausti, hvernig hún hafði stjórn á aðstæðum sínum. Treysti á ekkert nema eigin færni, einginn sá um fyrir henni og hennar. Þessi stund friðaði Sigrúnu, hringiðjan innra með henni tók að hægja á sér og taka á sig mynd. Tilfiningin breiddist út um líkamann og dreifði fiðrildum út um líkamann undir húðinni. Og þrátt fyrir að hún sveið, fylgdi henni ró og vellíðan.

Framkvæmdir dagsins höfðu kallað á herðingu hugans og hugrekki til þess að taka nokkur spor áfram, að vera eins og andan. Andlitið byrjaði að mynda vís af grettu og varirnar, sem báru dökkbleikan lit, tóku að titra og tilfiningin heltók hana svo ekkert annað rúmaðist fyrir innan og hún skynjaði ekkert annað en fegurð orkunar.

Það er til saga af blómálfi, með vængi, sem var svo lítil að hún gat bara rúmað eina tilfiningu í einu. 

Þetta var svolítið þannig og var ljúfur léttir undan hinni vanalegu ólgu af þúsund tilfiningum sem blikknuðu ótal sinnum frá stund til stundar. Það var ekki hægt að gefa henni neitt nafn, orðið var ekki til, það var bara hægt að segja að allt var rétt og hvað sem gerðist eftir þetta yrði eins og það ætti að vera. Hugur, sál og líkami voru eitt. Það var gott að finna stund þar sem hún small saman. Ísinn varð traustur í bili.

Monday, June 30, 2014

Logi

Logi

Veiðin hafði gengið vel og það var logn á stjörnubjartri heiðinni. Hreindýrin höfðu verið vel á sig komin og í fullum feldi. Félagarnir fimm sátu við eldinn saddir og friður ríkti yfir búðunum. Logi horfði með fjarænum augum í bálið og strauk um örið á hálsinum undir vinsti kjálkanum með hægri hendinni, gjöf frá eldri bróður hans. Logi hafði ekki hugmynd um að ef örlögunum hefði verið öðruvísi farið hefði hann orðið að löglega kosnum höfðingja Nyrstustrandar og skaginn hefði blómstrað í umsjón hans. Hann hefði orðið ástfanginn af prúðri stúlku, lifað hamingjusömu fjölskyldulífi og yfirgefið lífið í hárri elli sáttur, umkringdur erfingjum sem grétu för hans.
Þrír uppskerubrestir og þrír harðir vetrar höfðu séð til þess að svo yrði ekki. Í staðinn leiddi hann lítinn hóp af færum veiðimönnum með stöðuga þörf fyrir að finna einhvað, einhvað annað. Hann vissi ekki hvað og stoppaði aldrei lengi á sama stað. Innst inni vissi hann að honum hefði verið ætlað eitthvað annað.

            "í heimiun togast á tvo öfl. Það staðnaða sem bindur fólk niður og festir hugsanir í farvegi vanans, þess sem er álitið öruggt og afl frelsisins sem gefur fólki ótakmarkaðar hugsanir og þrá í eitthvað óþekkt. Við sitjum hérna allir saman, á sömubraut, gerum það sama en keyrðir áfram af sitthvorri orkunni"
Orð Ísars tufluðu ekkert sérlega hugsanir Loga og hann lítur á vin sinn sem horfir í eldinn á þess að sjá. Honum þótti ótrúlega vænt um þennan lágvaxna ljóshærða farfugl. "hvernig getur það verið" spyr hann og var skemmt" furðulegar vangaveltur Ísars og samræður voru honum gleðigjafi. Hann var góður núna og Logi ætlaði að njóta samveru við hann áður en hann hyrfi inní geðveikislegar ranghugmyndir. Hann óttaðist að einhvern tíman kæmi hann ekki til baka.

            Þeir höfðu hisst í trjáræmunni fyrir neðan holtið á þrettánda aldurs ári Loga, þá ný fluttur frá Nyrðstuströnd en Ísar á því tíunda. Drengirnir úr byggðinni fyrir neðan mættu oft drengjunum úr hæðinni og háðu við þá bardaga með skjöldum og prikum, sumir höfðu meiri segja skorið þau út eins og sverð. Allir dagar höfðu snúist um að plana hernaðaraðgerðir og eftir kvöldmat mættust fylkingarnar. Þeir höfðu allir lifað sig inní ærslaleikinn af lífi og sál.

            Eitt bjart sumarkvöld hafði Logi fengið þungt grjót í höfuðið svo blæddi úr. Lítill snoðaður gutti hafði hafði verið sá seki og hann tók á rás á eftir honum. Hinir drenginir voru of forhertir í sínu til að taka eftir atburðinum. Logi hafði elt sökudólginn lengi og trúði ekki hversu snöggur yfirferðar litli mörðurinn var. Loks fékk hann annan stein í hausinn þegar hann hafði týnt slóðinni, í þetta sinn að ofan og þarna var sá smái uppí tré. Logi hafði reynt að klöngrast á eftir honum en neðsta greinin á öspinni var of hátt uppi svo hann náði ekki taki. Hann settist fúll niður og ætlaði að klófesta hann þegar hann neyddist til að koma niður. En litli ljósi skrattinn kom ekki og þeir sátu á sínum stöðum alla nóttina, þarna byrjaði ævilöng vinátta.
"Nú það byggist allt á því hvaðan maður kemur og hver tilgangur manns er með hlutunum" Logi horfði á vin sinn enn stara sjónlaust í eldinn. Andlitið var veðurbarið, skásett blá augu og há kinnbein gáfu honum myndarlegt yfirbragð og hann óskaði þess heitt að hann yrði heill aftur svo hann gæti lifað venjulegu lífi með stúlkunni sem að hann elskaði, hann vissi að honum sveið sárt undan örlögum sínum, því Logi var kallaður Bjartur og bjartur var hann svo sannarlega.

Sunday, June 29, 2014

Falið

Falið

Í leit upp fjallstoppa og niður í hafsbotna. Leið í gegnum dimma dali og létt ganga yfir ljósa sali.

Enginn veit hvernig það lítur út og ekki allir verða þess varir. Í fjöru brýt upp öður, kanski í þeim það bærist.

Það gæti í fjallshlíðalækjum flotið eða hjartslátt sinn í flatlendisjurtum fólgið.

Gæti í fuglum flogið eða hjá stjörnum dvalið. Við öll erum að leita og finnum á sitthvorum stöðum.

Friday, June 27, 2014

Karat

Karat

Óháð ég mæti öldum, ógnandi brimi með basiskt litaða vanga. Traust sem bjarg og glitra björtu silfri. Frelsi krefsts rauðs skjaldar, hugrakkrar fegurðar. Í flæðarmálinu ber ég hann á vörunum. Andi minn glansandi klettur, klöpp á móti gríðar krafti sem angar saltur með dýpt í asanum . Sterk stoð á móti gífulega þungum þunga andstöðu.

Ófeig von knýr iðju til yrkju. Óljós ilmur skýtur streng og bærir sterkt litaðar varirnar. Uppskeru óskana ber ég á vöngunum í bjart bleikum lit. Ástríða kemur uppundir vængi mína í óþrjótandi straumi fastann við ósýnileg bönd með festu mér óþekkta. Gyltur gljái lýsir óvísa ferðaleið og í hartanu er hal sem ætíð eyðir þroti. þan fjaðra ber hugann yfir í það þráða, í það bjarta.

Óendalegt hol hvíldar í sálu að bý, hólf fyllt hamingju, heimur þar sem ég á heima í munaði og mildi, malandi í rekkju minni í ró. Varir mínar litaðar fylltum fjóla með rökkri og á vöngunum rós, rauður roði. Ég finn fró í gegnum gangandi golu með yli, í hýbíli gegndræpu, og vörmum ilmi. Yndisleg mýkt vaggar mér í blíðri snertingu. Feldur hylur mig og felur, umlykur hjartað og hlífir.

Sunday, April 13, 2014

Prettir

Hæ. Ef þú ert viðkvæm/ur fyrir bitru bragði skaltu flýta þér á annað veffang. Í áratugi hef ég verið viðskiptavinur The Body Shop. Verslanirnar í Kringlunni og á laugaveginum voru ávalt þær fyrstu sem ég heimsótti í vikulegum "verslunarferðum" mínum sem gelgja. Því sko, það var hægt að mála sig, manni bauðst hlaðborð af förðunarvörum frítt.. það var bara ekki hægt að taka dótið með sér heim en það skipti engu. 

Pepermint Reviving Leg gel. Camomile Gentle Eye Make-Up Remover. Vitamin E Tinted Moisture Lotion. Sweet Lemon Beautifying Oil. Body Butter. Strawberry Shower Gel. Lip & Cheek Stain. Vanilla Body Spray.

Bara nokkur dæmi um þær nauðsynjar frá The Body Shop í mínum skápum í dag og þegar þörf á eitthverju fleira kviknar leita ég iðulega fyrst til þeirra. Fyrirtækið hefur nokkuð myndarlega línu af vörum með Té Tré Olíu sem fær heilan vegg í verslununum svo það var bara náttúrulegt að leita þangað fyrst, fyrst þegar þörfin fyrir Té Tré Olíu steig upp.

Til sölu hjá þeim er 10 ml flaska sem kemur fyrir sjónir sem hrein olía en er í raun bara 10 ml af vatni, alkahóli, gerviefnum, öðrum olíum og svo 15% Té Tré Olía á 1390kr.

Við lestur innihalds á öðrum vörum í línunni var innihald hreinnar olíu mjög lágt og sumstaðar átti ég erfitt með að finna hana fyrir fjölda innihaldsefna.

Ég vann einu sinni í ár í apóteki og einu sinni vann ég við framleiðslu húðvara í ár. Og raun er margt í bakpokanum mínum sem gerir mig einstaklega ósaklausa, efafulla og á köflum hundleiðilega og hreint út dónalega við sölufólk. Og mig rámaði í virkilega góða náttúruvöru, sem var reyndar hætt influttingi í hruninu, en það skipti engu, ég varð að athuga!

ABC eða Austrailian Body Care býður uppá 10 ml af hreinni Té Tré Olíu á rúman 1000kr og sjampóið þeirra er 2% olía.

Síðan er gaman að geta frá því að Bifvélavirki gerði við bílinn minn fyrir 100.000kr og skilaði mér honum svo með gangtruflunum.. Til að gera langa sögu stuttu er bíllinn gott sem ónýtur og þessi maður vissi það.

Ég ætla ekki að birta nafnið hans né fyrirtæki hérna því ég er enn á að ákveða hvort ég eigi að biðjan hann fallega um peninginn til baka, mæta heim til hans með kylfu um nótt, gera um hann vel gerða FB færslu sem ég get beðið aðra að deila áfram eða hreinlega bara stofna til rifrildis við hann...

Wednesday, April 2, 2014

Að fella hugi saman


Mig skorti ekkert. Hápunktur efnahagsbólunar var í hámarki í boði ókrýnds konung Íslands og ég svaf værum blundi í alsælu fáviskunar, sátt í blindi og ábyrgðarleysi, enda eru heimskir brosmildari en snotrir, fróun egósins vakti ekki upp neinar athugasemdir. Myndin sem ég er að lýsa er Íbúð í 101 Borg Óttans, upphækkaður jeppi, partý hverja helgi, oftast tvö og síðast en ekki síst átti ég elsku sem sá fyrir mér. Yfir mig ástfangin.

Eða það taldi ég. Samband mitt við elskhuga minn var byggt á eigingirni. Ég elskaði hann á því skilyrði að hann uppfylti þarfir mínar, ef hann stóðst ekki þunga byrði af því að vera mér allt í öllu og þjóna hverri löngun sem ég vildi hafa útúr samruna lífs okkar, refsaði ég honum með kulda og svipuhöggum. Skilyrti hann, eins og ég myndi gera með tamningatrippi, til þess gefa mér allt sem ég þarfnaðist. Ég kunni ekki að elska svo ég var ekki elskuð.

Í dag er veldið hrunið og kónginum hefur verið steypt af stóli. Vasarnir eru götóttir. Ökutækið mitt gengur illa og vekur enga öfund, næstum allir myndu fara í eitthvað betra. Sjálfsumgleði mín er minni og ég er vöknuð, þegar ég sofna hrekk ég upp við martröð. Egóinu er sjaldan fullnægt og eins og með bílinn öfundar mig enginn af póstnúmerinu. Í íbúðinni minni eru aldrei partý en ég býð fólki heim og ég á enga elsku. Ég myndi aldrei vilja snýa til baka.

Hlutir á pappír líta mis vel út. Á endanum lagðist á mig þungi sem bætti sífelt á sig. Þyngdaraflinu var ekki breytt. Á endanum varð ég afvelta, varð að skera mig lausa.

Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Þótt tvær geitur eigi
og taugreftan sal,
það er þó betra en bæn.

Bú er betra
þótt lítið sé,
halur er heima hver.
Blóðugt er hjarta
þeim er biðja skal
sér í mál hvert matar.

Ég finn engin fornnorræn heilræði um hvað það þýðir raunverulega að elska og minnihluti manna vita hvernig það er gert í garð maka. Ég hef fengið tækifæri til þess að iðka raunverulega ást þannig að það má segja að ég hafi raunverulega elskað. Að láta ekki einu sinni félagskap duga. Að fá ekki sérplægni fullnægt og ekki heimta það. Að virða sjálfa mig það mikið að sýna maka mínum, og kannski ekki einu sinni það, tillitsemi og virðingu. Því sko sjáðu til, enginn sem ekki ber virðingu fyrir sjálfum sér er fær um að sýna maka sínum virðingu. Að hafa lítið sjálfstraust og lúffa í aðstæðum er ekki tillitsemi við neinn né virðing, heldur eigingirni. Að fá öllum sínum vilja framgengt og jafnvel ljúga af maka sínum er ekki að sína honum virðingaleysi, heldur sjálfum sér, og er eigingirni. Skiluru hvað ég á við?

Maki er manneskja sem þú hefur valið til þess að ganga með þér í gegnum lífið. Ef þú virðir sjálfa/n þig sýnir þú þessari manneskju ósjálfrátt virðingu og öfugt. Það er kannski auðveldara fyrir marga sem ekki sjá samhengið og skilja að sá sem virðir sig velur maka sem er verðingaverður. Þá er ég ekki að tala um þær aðstæður þegar einstaklingur finnst hann hafa verið heppinn og fengið maka sem er yfir honum hafinn. Ég get séð fyrir mér hvernig sú manneskja reynir allt til þess að láta sambandið verða árekstralaust, af ótta. Og ef þú finnur ótta við að missa maka þinn ertu að elska sjálfan þig ofar honum, því óttinn á sér rót í eigingirni og virðingarleysi við sjálfan sig. Að óttast er ekki það sama og að virða. Hérna er eigingjarni makinn ekki að elska, heldur að fróa egói sínu.

Aðeins þegar ég get elskað manneskju sem elskar mig á móti get ég talist ástfangin. Ég vil frekar vera ein en í ástlausu sambandi við maka. En þá er spurningin, er það virkilega að elska að gera þá kröfu að elskhugi minn sýni mér raunverulega ást? Oft hef ég afskráð sjálfa mig, haldið því fram við sjálfa mig, talað mig niður með að segja sjálfri mér að ég gæti ekki elskað, manngæði mín væru ekki næg. En raunveruleikinn er sá, og ég ætti ávalt að muna að ég er fyllilega fær um að elska og virkilega elska fleirri en einn. En þangað til að mér fellur hugi saman við einhvern vil ég vera ein, því þegar ég fer í sambúð í eigingirni er ég ekki ástfangin.

Þetta orðasmaband "að fella hugi saman" felur í sér hina mestu visku um hvað það er að elska og vera elskaður, þrátt fyrir að vera fornnorrænt. Stutt en einlægt eins og allt sem viðkemur hjartans málum í Íslensku samfélagi. Sannara en ástarjátningar skreyttar blómum og dýft í hunang. 

Tuesday, March 25, 2014

Visthverft viðhorf

Til að teljast til þróunarlanda þurfa lönd að uppfylla skilyrði, eða kannski réttara sagt að uppfylla ekki skilyrði. Þau þurfa að vera tæknilega vanþróuð með lága þjóðarframleiðslu á mann, búa við orkuskort, fátækt og litla eða enga menntun. 70% mannkyns býr í þróunarlandi.

Það er almennt talið að með bættum lífsgæðum og menntun öðalast konur og minnihluta hópar aukið jafnrétt en mig langar að benda þér á, kæri lesandi, að þessu er öfugt farið.
Aukið sjálfstæði á rætur að rekja til hamfara á fyrri hluta 20. aldar, Heimstyrjaldana. Karlmenn voru í meirihluta stráfeldir og teknir úr venjulegu samfélagi til þess að drepa hvorn annan. Við þetta kom í hlut kvenna að halda samfélagi gangandi, þær hlutu meira mikilvægi til þjóðarframleiðslu, ekki bara á stríðsárunum sjálfum. Samfara komu sprengingar í tækniþróun sem eftir stríð nýttust heimilum. Þarna urðu þær enn mikilvægari til gróða. Með auknum fjárráðum urðu nýr markhópur. Í kjölfari þessa jókst menntun. Sjálfstæði og blómstrandi efnahagur fylgdi og aukin lífsgæði og jafnrétti varð sem óstöðvaandi spírall, tveir hlutir sem haldast í hendur.


Ef þú dregur mig í efa skaltu lítast um. Kúgun kvenna er í hlutfalli við fátækt hvar sem er og markvist hjálpar starf, með langtíma hugsjón, beinist að bættum kjörum þeirra. Menntun þeirra. Sameinuðu þjóðirnar hafa líst því yfir að nauðgun sé vopn í stríði, til þess eins að grafa undan samfélaginu sem mest. Í Afganistan þarf að byrja á því að kenna konum að sýklar séu til, til þess eins að halda aftur af sjúkdómum og barnadauða. 

Það er almenn þekking, í 30% af heiminum, að í þessum löndum fer fram mesta mengun og eyðing lífríkis sem hefur áhrif á okkur öll. Gráðugir risar nýta sér veikleika samfélagana. Konur eru mjög ódýrt vinnuafl en á mörgum stöðum er það í þeirra hag að sjá til bættri menntun og lámarks aukningu á lífsgæðum, enn óhenntugt. Sumstaðar missa verkakonur allt uppí viku af vinnu í mánuði einungis vegna þess að þær hafa ekki aðgang af dömubindum, mjög óhenntugt. Aukin þáttaka í atvinnulífi hægir á fólksfjölgun en við erum alltof mörg ef þú vissir það ekki. Gróði þeirra fer hægt minnkandi samhliða hraða fyrr nefnds spírals.

Svo núna þykist ég, kæri lesandi, hafa sannað fyrir þér að lífvæni plánetunar til framtíðar er undir lífsgæðum kvenna. Nema náttúrulega ef þú veist ekki að fjöldadauði mannkyns er yfirvofandi. Regnskógar, sem eru drifafl vatnshringrásar, minnka um landsvæði stærra en Ísland á hverju ári og birgðir grunnvatns, sem er vantið sem er neysluhæft, fer ört minnkandi.

Svo mæli ég með að flokka rusl. Það verður bráðum skylt með lögum í þessu landi. Enda mælist Ísland með hvað mesta jafnrétti í heiminum. 
Svo langar mig svona síðast að segja þér að ég elska karlmenn. Þeir eru fallegir og ég dáist af hversu sterkir þeir eru og vildi ekki án þeirra vera, nokkurn tímann.