Thursday, March 23, 2023

Logn

Á sumarkvöldum þegar maður finnur fyrir því í húðinni hvernig sólin hefur skinið allan daginn, en hefur lækkað flugið svo stillt loftið nær að kólna örlítið, streymir sólarorkan af húð og hári þá glóir fólk í mildinni.

Við stóðum á tali eitt svona kvöld og skyndilega sá ég sálina þína, áruna og áttaði mig á því hversu fallegur þú ert. Þú sást mig sjá þig og ég tek eftir að þér bregður örlítið, verður svolítið hissa.
Eftir þetta fyllti tilvist þín mig svo mikilli gleði, ánægju, lífsnautn. Ég var ekki meðvituð um það þá, það var ekki fyrr en eftir að þú hvarfst mér og tókst geðblæinn með þér, brotthvarf þitt skildi eftir sig gap sem var lengi að fyllast.
Þú fallega sál
ég vona að Guð lækni þín sár.
Hugur minn feldi tár
er þinn í burtu flaug frá.

Thursday, March 31, 2022

Rósurún og rósirnar

Frænka mín er einstök þar sem hún baukar í runnum heimsins
og skoðar blómin sín.
Skældu aldrei frænkan góða, þegar blómin kinnina klóra,
togi í hárið síða og vilji þér smávegis stríða.
Því jafnvel þó svona séu úr sumum kimum lífsins áreitin,
getur hún verið strembin, af gróðri sem klappar..
sú undarlega og blessaða blómaleitin

                                                                                -Ádí 2011

Friday, July 17, 2020

Íslenska

Ég hleyp á eftir henni en hún er of snögg og hverfur sjónum. Bak við hnullunga, undir steinvölur og ég hraða mér í óðagoti á eftir, hring eftir hring og róta grjótinu upp með berum höndunum vitstola í örvæntingu minni og skeyti engu um að fingurneglurnar séu tættar upp í kviku og hendurnar alblóðugar. 
Stundum dreg ég að henni og orð eins og eggjun, ögrun og afarkostir örva hverja frumu sjálfs míns.
Þegar hún hverfur bak við fjöllin hverfur sólin með henni og sorgin verður þrúgandi. Grátur minn og kveinstafir skipta engu; falla fyrir daufum eyrum.
Aldirnar munu flæða að eins og öldur og ekkert af þessu mun skipta nokkru máli.

Thursday, July 4, 2019

Múraradóttir


Það er skýjaður morgun, í dag er dagurinn sem ég fylgi pabba mínum í gröfina. Ég velti fyrir mér hvort það sé hrikalega óviðeigandi að vera með sólgleraugu í athöfninni.

Ég elskaði pabba minn svo mikið að ég var fyrir svolitlum tíma farin að kvíða fyrir þessum degi, án þess að hafa ástæðu til. Pabbi var sterkur maður, á bæði líkama og sál. Fyrir ári síðan var ég við múrvinnu við hliðina á honum og í augnablik er mér litið til hans og dáðist af hversu hraustur hann var með einhvern æskuljóma þrátt fyrir gráahárið.

Mig verkjar svo í hjartað af því að vita að eftir daginn mun sál hans halda áfram, hvert svo sem sálir fara. Ég vissi það ekki á meðan hann lifði en pabbi minn var minn besti vinur, hann þekkti mig út og inn og hringdi áhyggjufullur ef ég beygði útaf daglegri rútínu bara smá.

Pabbi, ég veit ekki hvort þú áttaðir þig á því hversu mikið þú hefur gefið mér. Alla tíð hörkuduglegur í vinnu til að fæða og klæða mig og síðar vinskapurinn í lífinu sem við fjölskydan öll bjuggum til.

Það eru menn eins og þú sem gera þennan heim góðann
.
Ég er búin að vera á leiðinni í sturtuna frá því kl 2 í nótt því ég vil að hárið sé fullkomið í jarðaförinni. En nú fer ég að renna út á tíma bráðum til þess að gera eitthvað að viti við það.

Ég veit að pabbi var ekki hræddur við dauðann, frekar en eitthvað annað. Hann hafði orð á því að deyja eftir fall af hestbaki væri bara ekkert amarlegur dauðdagi, betra en margt annað, eftir að nágranni hlaut þau örlög.

Ég kyssti pabba alltaf á kinnina þegar ég kvaddi hann, ég vildi óska að ég hefði faðmað hann meira.

Þín Sigrún

Friday, November 4, 2016

Kórónan

Ef ég væri ekki međ ægishjálm flúrađan á mig væri ég týnd hérna í Bergunum. Þau eru eins og limbó á milli tveggja kóróna borgarinnar, sem ég byrjađi fljótlega ađ forđast eftir ađ ég kom fyrst hingađ í holtiđ; en ekki í dag, ekki síđan ég varđ stór.
Konan sem afgreiđir mig í sjoppunni hefur elst mikiđ, hefur enga geislun og á međan hún fálmar eftir tóbakinu leikur hugur minn ađ hugsuninni ađ hún veit ekki ađ ég veit ađ mađurinn hennar er nauđgari. Þekki nefnilega strákinn sem fékk dóm fyrir ađ berja hann. Á leiđinni eftir Austurberginu, í átt ađ lágvöruversluninni, rekst ég á ungling sem hefur aldeilis rétt úr sér síđan hann var hjá mér í vinnuskólanum fyrir misseri síđan og ég fatta ađ ég er farin ađ finna fyrir pressu til ađ fara hegđa mér almennilega á almannafæri á þessum stađ. Andskotinn. Á kassanum hjá Guđbrandi, ég fer alltaf til Guđbrands því útgeislun hans er svo björt ađ hún nær ađ hlýja mér þegar ég kem inn úr kuldanum, er konan úr bakaríinu fyrir framan mig og biđur mig ađ athuga međ pökkunardaginn á sómasamlokunni sem hún er međ. Gömul og blaut augun í henni sjá ekki ađ hún var smurđ í morgun. Þegar kemur ađ henni ađ borga er hún ekki međ nægilegt klink og segist ætla ađ sleppa samlokunni því hún nenni ekki ađ setja þetta á kortiđ, međan hún hlær óstyrk og gjóir augunum á alla í kringum sig. Hún vinnur bara hlutastarf, framkoma hennar og dagsetning dagsins gera þađ ađ verkum ađ mér finnst rökrétt ađ álykta ađ hún eigi ekkert á kortinu. Á leiđinni heim hugsa ég hvađ Ísland sé gott dæmi um réttnefni þegar mér stikar fótur í hálkunni.
-gigga

Monday, July 18, 2016

Sæl aftur

Hver staður hefur sína eigin verund.

Það er svoldið síðan, næstum tvö ár, ég hef skrifað eitthvað.

Lifandi bregst við, sumir kannski meira en aðrir; andlaus yfir þessu.

Veit ekki hvar né hvernig er best að byrja svo ég byrja bara. Hef beðið lengi og andgiftin hefur ekki enn komið af sjálfri sér svo ég velti frir mér hvort skáldagyðjan sé eins og vöðvi, jarðlegt fyrirbrigði sem þarf að halda í þjálfun en ekki yfirnáttúrulegt ástand sem kemur og fer eftir eigin hentugsemi og blessar suma en ekki aðra. Eins og Guð. 
Mögulega er ég enn að vinna úr atburðarás undanfarinna ára og velti fyrir hvort ég sé lengur að melta en aðrir, alveg eins og þegar ég melti fæðu. Fæða, ég þarf að vera á sérfæði þótt mig líki það ekki.

Hvernig er hægt að vera þreytt í tvö ár? En ég er að hressast núna, hef fengið að hvila mig smá. Já ég er aðeins byrjuð að hvílast og þarf að hvílast svo miklu miklu meira. 

Í dag ætla ég að sofa vært og gleðjast.

Sunday, March 1, 2015

Já þetta er til þín

Með dagrenningunni 
talar engin rödd,
hún stendur eiginlega eins og klunni
og það eru enginn köll.

Það er enn vetur 
svo það er kalt
og hún veit að hún getur betur
en ástin hefur bara verið sett í salt.

Hlýjan hefur vikið fyrir frera
og hann er stingandi hvass,
vill í þig skera;
þú ert fokking hlass. 

Take care


The one who did not see that one coming.